Námsleiðin er unnin í samstarfi Vinnumálastofnunar og Fræðslusetursins Starfsmenntar og sérhönnuð fyrir starfsfólk Vinnumálastofnunar um allt land. Áætlað er að ljúka náminu á árinu 2009 og verður fyrirkomulagið með þeim hætti að Starfsmennt heldur utan um framkvæmd námsleiðarinnar í nánu samstarfi við Vinnumálastofnun.
Á vorönn 2010 verður boðið upp á námskeið námsleiðarinnar og greiðir Starfsmennt ferða- og dvalarstyrki til sinna félagsmanna þar sem hagkvæmustu kjara er leitað.
Námskeið vorannar 2010
Námsskrá