Námskeið framundan



Vísdómur

Námsleið héraðsdómstóla

Markmið
1. Að styrkja starfsmenn héraðsdómstóla í störfum sínum með aukinni þekkingu og færni
2. Að héraðsdómstólar hafi ævinlega á að skipa hæfum einstaklingum sem eru tilbúnir að takast á við ný verkefni og störf á hverjum tíma.

Forsendur verkefnis og undirbúningur
Verkefnið er liður í að móta heildstætt námskerfi eða námslínu fyrir starfsmenn héraðsdómstóla sem tekur mið af nýjum þörfum fyrir fræðslu og þjálfun á vinnustað.

Fræðslan lýtur að starfsmönnum innan dómstólanna og byggir á greiningu á þörfum þeirra þar sem til grundvallar voru lögð hlutverk og stefna dómstólanna, könnun sem gerð var á fræðsluþörf hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og Héraðsdómi Reykjaness og námsleiðinnni Járnsíðu sem Fræðslusetrið Starfsmennt hefur haldið úti s.l. ár.

Tillögurnar eru unnar af starfshópi sem í sátu Anna Mjöll Karlsdóttir frá Dómstólaráði, Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, Sigrún Agnes Njálsdóttir ritari við Héraðsdóm Reykjavíkur, Jónas Jóhannsson héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, Erna Björt Árnadóttir, ritari við Héraðsdóm Reykjaness og Árný Elíasdóttir, Minerva, ráðgjafi á vegum Starfsmenntar, sem stýrði verkefninu.

Námsskrá - í pdf. formi

Við bendum á Almenn þverfagleg námskeið sem eru opin öllum og fjarkennt tölvunám.

Tölvunámskeið - Fjarnám

Almenn þverfagleg námskeið

 





Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070