Námskeið framundan



Ýmsar námsskrár Starfsmenntar

Starfsmennt vinnur með stýrihópum stofnana eða starfsgreina að gerð námsskráa fyrir markhópa sína. Í stýrihópum eiga sæti fulltrúar stjórnenda og starfsmanna og hittast þeir reglulega á meðan á gerð náms stendur. Oft er Ráðgjafi að láni fenginn til aðstoðar en einnig tekur starfsfólk Starfsmenntar að sér klæðskerasniðna fræðsluhönnun sem nýtist starfsmönnum í starfi. Framkvæmd náms er  í megindráttum með tvennum hætti. Annarsvegar er um einstaklingsbundna nálgun að ræða þar sem starfsfólk velur þá námsþætti sem henta þeirra starfsþróun úr heildarnámsleið og hinsvegar nám þar sem nemendahópurinn fylgst að og lýkur öllum námsþáttum. Starfsmennt setur einnig upp fjölmörg stök námskeið í samráði við stofnanir og eru þau ýmist kennd á vegum viðurkenndra fræðsluaðila um allt land eða á vinnustöðum. Öll námskeið Starfsmenntar eru vottuð með þátttökuskjali sem nemendur geta nálgast á rafrænu heimasvæði sínu. Þar hafa þeir yfirlit yfir allt nám sem þeir hafa tekið á vegum Starfsmenntar og geta prentað það út þegar á þarf að halda.



Yfirlit yfir námsskrár Starfsmenntar:


Áfangar-námsleið fyrir fangaverði

Á fjölunum- námsleið fyrir leiksviðstækna

Á vettvangi - námsleið fyrir læknaritara

Heilsa- námsleið fyrir mótttökuritara heilsugæslu og heilbrigðisstofnana

Heilsa- námsleið fyrir skrifstofustjóra heilsugæslunnar

Hæfni- námsleið fyrir heilbrigðisritara

Járnsíða- námsleið fyrir starfsmenn sýslumannsembætta

Launaskólinn - nám fyrir launafulltrúa og aðra sem koma að kjara- og starfsmannamálum hjá ríki og sveitarfélögum

Lausnir- námsleið fyrir lyfjatækna 

Mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur í opinberum rekstri

Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum

Nýr vettvangur - breytt starf

Starfsnám stuðningsfulltrúa-grunnnám

Starfsnám stuðningsfulltrúa-framhald

Stoð-námsleið fyrir stuðningsfulltrúa 

Talsmaður breytinga

SKIL - Námsleið fyrir starfsmenn á innheimtusviði Tollstjóra

Verkefnastjórnun

Vinnumálaskólinn - námsleið fyrir starfsfólk Vinnumálastofnunar

Vísdómur - námsleið fyrir starfsmenn héraðsdómstóla





Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070