search

Markmið setursins

Markmið Fræðslusetursins Starfsmenntar

Í reglum um Fræðslusetrið Starfsmennt er hlutverk þess skilgreint á þann veg að það eigi meðal annars að vera;

• hugmyndabanki / umsjónaraðili / framkvæmdaaðili
• að meta þörf fyrir fræðslu hjá einstökum stofnunum eða stofnanahópum
• hafa frumkvæði að því að búa til námskeið sem svarar þeirri þörf

Á grunni nefndra reglna leggur Starfsmennt því megináherslu á eftirfarandi markmið:

• að efla starfsnám og símenntun þeirra starfsmanna stofnana sem aðild eiga að því, með það fyrir augum efla þekkingu þeirra, hæfni og vellíðan í starfi svo þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni. Starfsmennt mun leggja áherslu á að bjóða upp á nám og stuðning er styrkir einstaklinga, starfshópinn sjálfan og eykur getu þeirra við úrlausn verkefna.
• að bjóða upp á fræðslu, þjálfun og stuðning við stofnanir og stofnanahópa, er eykur möguleika þeirra á að þróa starfsemi sína á þann veg, að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma.
• að hafa námskeið og þjálfunartilboð setursins opin þannig að fleiri aðilar en þeir sem beina aðild eiga að því geti einnig sótt um þátttöku.

Leiðir
Fræðslusetrið Starfsmennt hyggst ná ofangreindum markmiðum með öflugu og fjölbreyttu námsframboði og góðri þjónustu, þar sem hagur starfsmanna og stofnana fara saman. Það mun setrið gera með því að gera tillögur um fræðslu, vera umsjónaraðili og/eða framkvæmdaaðili, taka á móti hugmyndum og vera stefnumótandi. Einnig mun Fræðslusetrið Starfsmennt leggja áherslu á að meta þörf fyrir fræðslu og þróa leiðir til að mæta breytilegum kröfum um þjálfun og nám bæði meðal starfsmanna og stofnana.
Fræðslusetrið Starfsmennt mun alla jafna leggja áherslu á að fá til samstarfs hæfa aðila til að sjá um framkvæmd þeirra námskeiða og námstilboða sem setrið hyggst standa að. Í þessu efni mun setrið leita til menntastofnana, einstaklinga og fyrirtækja á sviði menntunar og fræðslu, til að taka að sér framkvæmd verkefna.

Uppbygging setursins
Starfsmennt mun leggja áherslu á að byggja upp þekkingu og getu meðal stjórnar og starfsmanna, til að sinna verkefnum sínum á sem skilvirkastan hátt. Hluti af þeirri stefnu er að taka þátt í endur- og símenntunarverkefnum, sem aðrir aðilar bjóða upp á. Starfsmennt leggur áherslu á að stjórn og starfsmenn taki virkan þátt í slíkum verkefnum eftir efni og ástæðum hverju sinni, jafnt innan lands og utan.

Fagráð
Fræðslusetrið Starfsmennt stefnir að því að þau verkefni sem það stendur fyrir verði ávallt byggð upp af fagmennsku og að leiðarljósi verði haft að tryggja eftir föngum bestu fáanlegu gæði verkefna. Þessu hyggst setrið meðal annars ná með því að koma á fót fagráði, sem stjórn setursins og framkvæmdastjóri munu hafa sér til ráðgjafar varðandi kennslufræði, starfsnám og útfærslu námstilhögunar að öðru leyti.

Námskeið og þjálfunarleiðir
Fræðslusetrið Starfsmennt leggur áherslu á vandaðan undirbúning námskeiða, þjálfunar, ráðgjafar og annarrar þjónustu sem setrið veitir. Í þessu sviði vinnur setrið náið með ýmsum fagaðilum á þeim vettvangi sem það starfar og nýtur ráðgjafar þeirra. Hluti af gæðastjórnun setursins á þessu sviði er mat á árangri hvers verkefnis og regluleg endurskoðun þeirra.
Fræðslusetrið Starfsmennt stefnir að því að tryggja gæði starfseminnar með því að hljóta viðurkenningu þess til bærra aðila á námskeiðum, þjálfunarleiðum og öðrum þeim verkefnum sem setrið stendur að.

Samstarf
Fræðslusetrið Starfsmennt leggur áherslu á að rækta samstarf við aðra aðila utan þess hóps sem stendur að setrinu. Lögð skal áhersla á að fá til samvinnu önnur stéttarfélög og aðra rekstraraðila þegar um er að ræða verkefni, sem nýtast öðrum en þeim sem aðild eiga að setrinu.

Gæðastarf Starfsmenntar útfrá markmiðum.





Fræðslusetrið Starfsmennt
Ofanleiti 2 · 103 Reykjavík · Sími 550 0060 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070