Yfirlit námsleiða og þjónustu

Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf apríl 2012
Nám í samstarfi við framhaldsskóla næsta haust
Nú er vor í lofti og söngur lóunnar farinn að heyrast víða. Eitt af vorverkunum hjá okkur er að huga að haustinu og námskeiðahaldi þá. Starfsmennt hefur um skeið boðið upp á fjölbreytt nám í samstarfi við framhaldsskóla og þar sem umsóknarfrestur í þær námsleiðir rennur út í upphafi sumars er ekki seinna vænna að kynna sér hvað er í boði. Þar sem hér er um langt eininganám að ræða þarf að huga að ýmsu áður en ákvörðun er tekin og sækja um með góðum fyrirvara. Í öllum tilfellum greiðir Fræðslusetrið Starfsmennt eininga- og innritunargjöld fyrir félagsmenn aðildarfélaga.
Til að tryggja að sem flestir geti nýtt sér það nám sem um ræðir er í mörgum tilfellum bæði boðið upp á dreif- og staðnám.
Brúarnám fyrir verðandi félagsliða
Með svokölluðu brúarnámi er verið að viðurkenna starfsreynslu fólks og þátttöku í starfstengdri símenntun. Starfsmennt býður upp á brúarnám í samstarfi við Borgarholtsskóla fyrir verðandi félagsliða þar sem starfsreynsla er metin til styttingar á félagsliðabraut. Annars vegar er um staðbundið nám að ræða og hinsvegar dreifnám sem fer að mestu fram á netinu. Námið byrjar strax næsta haust og má sækja umsóknareyðublöð á heimasíðu Starfsmenntar en þeim ber að skila til Borgarholtsskóla fyrir 1. júní nk. ásamt fylgigögnum. Nánari upplýsingar hér.
Viðbótarnám fyrir félagsliða
Nú í haust verður einnig boðið upp á nýjan kost, Viðbótarnám fyrir félagsliða. Um ræðir 36 eininga viðbótarnám sem samanstendur af 11 áföngum sem ætlað er að dýpka grunnþekkingu, efla fagmennsku og kynna nýjar áherslur í þjónustu við fatlaða, aldraða og sjúka. Þrír þriggja eininga áfangar verða kenndir á hverri önn í dreifnámi hjá Borgarholtsskóla. Næsta haust verða kenndir áfangarnir: Fatlanir,viðhorf og þjónusta, Stjórn og hagur og Öldrun og lífsgæði. Áhugasömum er bent á að snúa sér beint til Borgarholtsskóla til að fá frekari upplýsingar um námskeið og skráningu. Umsóknarfrestur fyrir haust 2012 er til 1. júní.
Brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara
Starfsmennt býður upp á 3ja anna brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara í samvinnu við Fjölbrautaskólann við Ármúla þar sem starfsreynsla er metin inn í dagskólanám eða fjarnám. Forkröfur inn í námið eru að hafa 4 ára starfsreynslu að baki hið minnsta sem hjúkrunar- og móttökuritari og hafa lokið 120 stundum í sérhæfðri fræðslu. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má nálgast á heimsíðu Starfsmenntar og ber að skila umsóknum til Fjölbrautskólans við Ármúla fyrir 8. júní 2012. Fjarnám má sækja um aðeins síðar og hér má fá allar nánari upplýsingar. Vinnustaðir eins og Landspítalinn og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hvetja alla þá mótttökuritara sem ekki hafa réttindi sem heilbrigðisritarar að nýta þetta tækifæri til að efla sig í starfi og hvetjum við alla áhugasama til að hafa samband við næsta yfirmann til að ræða hvernig þætta má saman heibrigðisritarabrú og daglegt starf.
Skrifstofubraut I og II
Starfsmennt hefur nú um nokkurra ára skeið boðið upp á nám á skrifstofubraut í samstarfi við Menntaskólann í Kópavogi. Skrifstofubrautin er ætluð fólki í margvíslegum störfum og miðar að því að efla færni í íslensku, ensku, bókhaldi, skipulagi og stýringu verkefna. Námið er haldið í samstarfi við MK og er Skrifstofubraut I alls 33 einingar og Skrifstofubraut II alls 28 einingar. Hægt er að velja milli fjarnáms (3 annir) og staðbundins nám (2 annir). Skrifstofufólk með langa starfsreynslu og góða undirstöðu getur óskað eftir að fara í raunfærnimat til styttingar á námsbrautinni.
Nú í haust verður boðið upp á allar annir Skrifstofubrautar I í bæði stað- og fjarnámi. Á skrifstofubraut II verður aðeins boðið upp á fjarnám.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig. Staðnám hefst 22. ágúst og fjarnám 8. september. Umsóknarfrestur er til 1. júní
50+ Hagnýtt nám í lífi og starfi
Þessi 11 eininga námsleið er sérsniðin að þörfum fólks sem býr yfir mikilli starfsreynslu og þekkingu án þess að hafa það endilega skjalfest með formlegum prófum. Námið nýtist einnig til upprifjunar, treystir undirstöður þátttakenda í grunnfögum og eflir almenna starfshæfni. Helstu námsþættir eru íslenska, enska, tölvur, námstækni, bókhald og sjálfsefling. Námið hefst 10. september í MK og er kennt alla daga frá 15.15-18 í eina önn og hér geta félagsmenn skráð sig og fengið nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 1. júní.
Nám í mannauðsstjórnun (32 stundir)
Hér er boðið upp á stutt nám í mannauðsstjórnun þar sem sjónum er beint að vinnustaðnum, fólkinu og samskiptum þess. Megintilgangur námsins er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauði út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana. Kynnt eru hugtök eins og starfsánægja, starfsþróun, hæfni, hvatning og stjórnunarstílar og hentar námskeiðið öllum þeim sem áhuga hafa á fræðslu- og mannauðsmálum.
Kennsla hefst í Endurmenntun HÍ þann 10. maí og er kennt fimmudag, föstudag, mánudag og þriðjudag. Er þetta gert til að auðvelda þeim sem búa utan höfuðborgarsvæðisins að taka þátt. Hér má skrá sig til leiks.
Eldri fréttabréf
- Veffréttabréf mars 2006
- Veffréttabréf apríl 2006
- Veffréttabréf júní 2006
- Veffréttabréf ágúst 2006
- Veffréttabréf desember 2006
- Veffréttabréf febrúar 2007
- Veffréttabréf maí 2007
- Veffréttabréf ágúst 2007
- Veffréttabréf október 2007
- Veffréttabréf nóvember 2007
- Veffréttabréf desember 2007
- Veffréttabréf janúar 2008
- Veffréttabréf febrúar 2008
- Veffréttabréf mars 2008
- Veffréttabréf apríl 2008
- Veffréttabréf 5.tbl. 2008
- Veffréttabréf 6. tbl. 2008
- Veffréttabréf október 2008
- Veffréttabréf nóvember 2008
- Veffréttabréf desember 2008
- Veffréttabréf janúar 2009
- Veffréttabréf til leiðbeinenda og fræðslufulltrúa
- Veffréttabréf feb. 2009
- Veffréttabréf mars 2009
- Veffréttabréf apríl 2009
- Veffréttabréf maí 2009
- Veffréttabréf júní 2009
- Veffréttabréf ágúst 2009
- Veffréttabréf sept 2009
- Veffréttabréf október 2009
- Veffréttabréf nóvember 2009
- Veffréttabréf desember 2009
- Veffréttabréf janúar 2010
- Veffréttabréf febrúar 2010
- Veffréttabréf til leiðbeinenda og fræðslufulltrúa 2010
- Veffréttabréf mars 2010
- veffréttabréf apríl 2010
- Veffréttabréf maí 2010
- Veffréttabréf júní 2010
- Veffréttabréf ágúst 2010
- Veffréttabréf september 2010
- Veffréttabréf október 2010
- Veffréttabréf nóvember 2010
- Veffréttabréf desember 2010
- Veffréttabréf janúar 2011
- Veffréttabréf febrúar 2011
- Veffréttabréf mars 2011
- Veffréttabréf apríl 2011
- Veffréttabréf maí 2011
- Veffréttabréf júní 2011
- Veffréttabréf ágúst 2011
- Veffréttabréf september 2011
- Veffréttabréf október 2011
- Veffréttabréf nóvember 2011
- Veffréttabréf desember 2011
- Veffréttabréf janúar 2012
- Veffréttabréf febrúar 2012
- Veffréttabréf mars 2012
- Veffréttabréf apríl 2012