Veffréttabréf nóvember 2009

Starfsnám á nýju ári

Þó nóvembermánuður sé rétt hafinn og miklar annir framundan þá er þetta rétti tíminn til að skrá sig á nám á næsta ári. Fjölbreytt námsframboð mun birtast á vef Fræðslusetursins Starfsmenntar næstu vikurnar og er þar um að ræða almenn námskeið og fjarkennt tölvunám sem opin eru öllum ásamt starfstengdum námsleiðum sem eru sérhannaðar fyrir stofnanir eða starfshópa. Nú er búið að opna fyrir skráningar í starfsnám sem hefst snemma á næsta ári og henta þær námsleiðir bæði þeim sem vilja styrkja starfsgrundvöll sinn í núverandi starfi eða eru að söðla um og sækja á nýjan vettvang. Þær námsleiðir sem hér eru kynntar greiða leið í frekara nám eða efla fagmennsku í störfum. Og að venju þá er allt nám félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en einnig opið öðrum.

Starfsnám stuðningsfulltrúa

Starfsnám fyrir stuðningsfulltrúa er ætlað starfsmönnum í þjónustu við fatlaða, aldraða eða sjúka. Námið er einnig opið þeim sem hyggja á störf á þessum vettvangi. Markmiðið er að auka færni og þekkingu starfsfólks á aðstæðum og þörfum skjólstæðinga til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Hér má prenta út kynningu um grunn- og framhaldsnámið til að hengja upp á vinnustöðum.

Starfsnám stuðningsfulltrúa - grunnnám

Markmiðið með grunnnámi stuðningsfulltrúa er að efla fagmennsku þeirra og færni í starfi. Námið er alls 160 kst og samanstendur af 27 spennandi námsþáttum. Kennsla hefst í Reykjavík 8. febrúar og er kennt á morgnana til 12. apríl. Hér má skrá sig til þátttöku og fá allar upplýsingar s.s stundaskrá og námslýsingu.

Starfsnám stuðningsfulltrúa - framhaldsnám

Markmiðið með framhaldsnámi stuðningsfulltrúa er að fræðast enn frekar um líf og aðstæður skjólstæðinga og dýpka faglega þekkingu. Námið er alls 80 kst og samanstendur af 16 námsþáttum. Kennsla hefst í Reykjavík 22. febrúar og er kennt á morgnana aðra hverja viku. Grunnnámið er undanfari framhaldsnámsins en að því loknu er leiðin greið í félagsliðabrú fyrir starfsfólk með langa starfsreynslu. Frekari upplýsingar um s.s. stundaskrá og námslýsingu má finna á skráningarsíðunni.

Skrifstofubraut í fjarnámi fyrir ritara og skrifstofustjóra

Starfsmennt býður upp á skrifstofubraut í fjarnámi fyrir þann stóra hóp sem vinnur fjölbreytt skrifstofustörf. Námið er í samstarfi við MK. Boðið er upp á nám á  skrifstofubraut I og II og raunfærnimat fyrir reynt starfsfólk sem stendur traustum fótum námslega. Hér er um úrvals starfsnám að ræða sem ætlað er að efla almenna og sérhæfða færni í íslensku, ensku, bókhaldi, rekstri, skipulagi og stýringu verkefna. Námið hefst 25. janúar og þarf að skrá sig fyrir 15. janúar á Skrifstofubraut I á  2.önn eða 3. önnSkrifstofubraut II eða í raunfærnimat. Allir þátttakendur fá kennslu í námstækni í upphafi til að tileinka sér ný og breytt vinnubrögð. 
 

Fjarkennt nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur

Starfsmennt býður upp á nám í mannauðsstjórnun til að koma til móts við fræðsluþarfir millistjórnenda hjá ríkinu. Hér er um að ræða starfsfólk sem axlað hefur aukna ábyrgð í starfi eða sinnir flóknum verkefnum. Námið er sniðið að starfsmannastjórum og verkefnastjórum í starfsmannahaldi og deildarstjórum eða fræðslufulltrúum stofnana. Námið er 32-36 stundir og verður fjarkennt frá Háskólanum á Akureyri á Selfoss, Ísafjörð, Egilsstaði og Siglufjörð. Fjarnámið hefst 26. jan og er einingabært fyrir þá sem kjósa að þreyta próf.

Fleiri námsleiðir – nýjar og gamlar

Viltu verða Talsmaður lærdóms eða efla stjórnunarhæfni þína?

Þá gæti 72 stunda nám um Talsmann lærdóms hentað þér eða 52 stunda nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum. Hér má prenta út kynningu á þessum nýju námsleiðum.

Er þinn tími kominn til að læra á tölvur?

Starfsmennt býður upp á fjarkennt tölvunám sem notið hefur mikilla vinsælda vegna einfaldleika og persónulegrar leiðsagnar. Enn má skrá sig á Word námskeið sem haldið verður 24. nóv. á þessari önn en einnig hefur verið opnað fyrir skráningar á vorönn í: grunnnám, Word, Excel, myndvinnslu, Outlook, Publisher og PowerPoint. Hér má sjá meðmæli nemenda með náminu.

Upplýsinga- og skjalastjórnun

Námið hefst 23. nóv. hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og enn er hægt að skrá sig.

Allar frekari upplýsingar um nám og þjónustu Starfsmenntar er veittar í síma 525-8395 á skrifstofutíma eða senda má fyrirspurnir á smennt@smennt.is. Ef þú vilt kynna þér nánar hvað Starfsmennt stendur fyrir og hvers má vænta af þjónustunni þá gæti Gæðamappa Starfsmenntar veitt svarið.



Eldri fréttabréf