Yfirlit námsleiða og þjónustu

Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf mars 2010
Þátttaka í námi á þessari vorönn stendur nú sem hæst í bæði styttri sem lengri námsleiðum hjá Starfsmennt. Boðið er upp á almenn þverfagleg námskeið sem opin eru öllum og sérsniðið nám fyrir einstaka stofnanir eða starfsgreinar þar sem fræðslan er samofin vinnunni. Mikil þátttaka er að þessu sinni í almennu námskeiðunum og ræður þar miklu samstarf við Vinnumálastofnun sem hefur metið mörg námskeiða Starfsmenntar sem góð úrræði til að viðhalda starfshæfni á meðan á atvinnuleit stendur. Þátttaka í sérsniðnu námi fyrir stofnanir hefur minnkað frá því sem áður var og má skrifa það á aukið álag og annir starfsfólks og stjórnenda. Margar stofnanir horfa þó fram á við með því að kalla eftir þjónustu Starfsmenntar til að hanna nýtt nám sem mætir auknum kröfum eða breyttu vinnulagi. Hér má sjá þær starfstengdu námsleiðir sem eru í boði þessa vorönnina og auglýsingu um fjölbreytta þjónustu við stofnanir . Þá hafa farandfyrirlestrar sem stofnanir fá til sín verið vel nýttir. Símenntun starfsfólks er komin til að vera og þekkingarleit og þjálfun verður ekki slegið lengi á frest því það eykur líkur á lélegum vinnubrag. Starfsmennt vill því hvetja samstarfsaðila sína til að horfa fram á veginn og huga að framtíðarhæfni og vellíðan starfsfólks t.d. með því að skoða margskonar tillögur að fræðslu og setja saman eigin fræðsluáætlun.
Fjölbreytt námskeið á næstunni
Framrás I – Ég og starfið (36 stundir)
Heilbrigt sjálfstraust og sjálfsþekking hafa mikil áhrif á gæði samskipta og á þessu námskeiði sem haldið er í Endurmenntun Háskóla Íslands er fjallað um hvað styrkir þennan grunn og eykur almenna vellíðan í lífi og starfi. Hér fjalla reyndir sálfræðingar um jákvæða vinnustaðarmenningu, eflingu liðsheildar, hvatningu, sjálfstraust, lífsleikni og tilfinningagreind. Námið hefst 12. apríl og er kennt tvo morgna í viku. Opið er fyrir skráningar hér fram að páskum.Rekspölur II (60 stundir)
Á Rekspalarnámskeiðum er fjallað um ýmis samfélagsleg málefni í bland við samskipti, sköpun og siðferði. Markmiðið er að styrkja einstaklinginn í lífi og starfi með umfjöllun um sjálfstraust, samskiptahæfni, sköpunarkraft, framkomu og rökvísi. Einnig er fjallað um samfélagsleg málefni eins og samninga, hagsmuni, fjölmenningu og fordóma. Hluti námsins er fjarkenndur til að kynna notkunarmöguleika netsins. Þessi námsleið hefur styrkt nemendur til frekara náms eða eflt þátttöku þeirra í félagsstörfum. Námið hefst 13. apríl og er kennt í heila viku í Reykjavík, og hér má skrá sig til þátttöku og fá frekari upplýsingar.Verkefnastjórnun (24 stundir)
Starfsmennt býður upp á 24 stunda námskeið um verkefnastjórnun þar sem kynnt er hugmyndafræði og helstu aðferðir þessa vinsæla verklags. Farið er í mótun hugmyndar, markmiðssetningu, framkvæmdaáætlun, verkáætlun og tímaáætlun ásamt kostnaðargreiningu og kynningaráætlun. Einnig er fjallað um samskipti innan verkefna, upplýsingamiðlun og hlutverk verkefnastjóra. Námið hefst í Reykjavík 28. apríl og er fjarkennt til Egilsstaða, Selfoss, Akureyrar og Ísafjarðar. Námskeiðið hentar öllum þeim sem vinna við verkefnastjórn en vilja ná betri tökum á starfinu ásamt þeim sem hyggja á störf á þessum vettvangi.Nám í mannauðsstjórnun (32 stundir)
Hér er boðið upp á stutt nám í mannauðsstjórnun þar sem sjónum er beint að vinnustaðnum, fólkinu og samskiptum þess. Megintilgangur námsins er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauðinn á hverjum vinnustað út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana. Áhersla er lögð á skipulagningu og stjórnun starfsmannamála og að gefa yfirsýn yfir fræðasviðið sem og hagnýt verkfæri. Kynnt eru hugtök sem skipta miklu máli í starfi hvers og eins s.s. starfsánægja, starfsþróun, hvatning, stjórnunarstílar, samtalstækni ásamt hæfnishugtakinu. Námið er sniðið að þörfum millistjórnenda s.s. starfsmannastjóra og verkefnastjóra í starfsmannahaldi, fræðslustjóra og annarra starfsmanna sem axlað hafa aukna ábyrgð í starfi eða vilja kynna sér þennan málaflokk nánar. Kennsla hefst í Endurmenntun HÍ þann 6. maí og er kennt í 2x2 samliggjandi daga.Að tjá sig án kvíða (16 stundir)
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja ná tökum á frammistöðukvíða eða auka öryggi sitt í flutningi máls. Farið verður í undirstöðu góðrar raddbeitingar og framsagnar s.s. öndun, líkamsstöðu og notkun talfæra. Augnsamband og framsögn verður æfð ásamt því að kynna leiðir til að takast á við stress og yfirvinna það. Kennsla hefst nú í mars í Reykjavík og á Akureyri.Upplýsinga- og skjalastjórnun (10 stundir)
Hér er fjallað um tengsl upplýsinga- og skjalastjórnunar við stjórnun þekkingar og gæða. Kenndar verða aðferðir við að skipuleggja útgefið efni s.s. bækur, tímarit, fréttabréf, ársskýrslur og rafræn gögn. Sýnt verður fram á hvernig hægt er að nota ýmis tölvukerfi við skipulagningu gagna, skráningu, vistun og endurheimt. Áhersla er lögð á almenna umfjöllun svo að námskeiðið henti þeim breiða hópi starfsmanna sem hafa með málaflokkinn að gera á vinnustað. Námið hefst í Reykjavík 12. mars og er fjarkennt víða á Austulandi.Starfsnám stuðningsfulltrúa – grunnnám og framhaldsnám
Starfsnám fyrir stuðningsfulltrúa er ætlað starfsmönnum í þjónustu við fatlaða, aldraða eða sjúka. Námið er einnig opið þeim sem hyggja á störf á þessum vettvangi. Markmið námsins er að auka færni og þekkingu starfsfólks á aðstæðum og þörfum skjólstæðinga til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Mjög góð þátttaka hefur verið í þessum stóru námsleiðum á þessari önn og fer nýtt grunnnám (160 stundir) af stað núna 15. mars í Reykjavík sem fjarkennt er til Ísafjarðar. Þar eru nokkur pláss laus ennþá en kennt er eftir hádegi fram á vor. Annað grunnámskeið hefst síðan 6. september þar sem kennt er fyrir hádegi. Þar sem hér er um 160 stunda starfsnám að ræða þurfa væntanlegir nemendur að skipuleggja tíma sinn með það í huga. Þá verða tvö framhaldsnámskeið í boði í Reykjavík á haustönn 2010 og hefst það fyrra 13. sept. sem kennt er fyrir hádegi í hverri viku og það síðara 11. okt. þar sem kennt verður aðra hverja viku. Hér má prenta út kynningu um grunn- og framhaldsnámið til að hengja upp á vinnustöðum.
Röð námskeiða fyrir atvinnuleitendur innan BSRB
Boðið er upp á fjölda sjálfstæðra og spennandi námskeiða fyrir félagsmenn aðildarfélaga, BSRB sem misst hafa vinnuna undanfarið. Hér má sjá yfirlit yfir námskeiðin í mars- maí en kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10-13 fram á vor og er þátttakendum boðið upp á léttan hádegisverð samhliða náminu. Námskeiðin hentar þeim sem vilja styrkja stöðu sína almennt á vinnumarkaði með því að auka sjálfsþekkingu, starfshæfni og þátttöku í símenntun. Markmið námskeiðanna er að vekja einstaklinga til vitundar um þróun starfa og starfsumhverfis og efla þor til að greina nýjar leiðir úr erfiðri stöðu. Námskeiðin eru metin sem virkniúrræði á vegum Vinnumálastofnunar. Nánar um námskeiðin og skráningar hér en þátttaka er BSRB félögum að kostnaðarlausu.
Að venju er öll þjónusta og nám á vegum Starfsmenntar félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en opin öðrum sem þá greiða gjald. Þá hvetjum við lesendum að hafa samband við skrifstofu til að fá allar nánari upplýsingar.
Eldri fréttabréf
- Veffréttabréf mars 2006
- Veffréttabréf apríl 2006
- Veffréttabréf júní 2006
- Veffréttabréf ágúst 2006
- Veffréttabréf desember 2006
- Veffréttabréf febrúar 2007
- Veffréttabréf maí 2007
- Veffréttabréf ágúst 2007
- Veffréttabréf október 2007
- Veffréttabréf nóvember 2007
- Veffréttabréf desember 2007
- Veffréttabréf janúar 2008
- Veffréttabréf febrúar 2008
- Veffréttabréf mars 2008
- Veffréttabréf apríl 2008
- Veffréttabréf 5.tbl. 2008
- Veffréttabréf 6. tbl. 2008
- Veffréttabréf október 2008
- Veffréttabréf nóvember 2008
- Veffréttabréf desember 2008
- Veffréttabréf janúar 2009
- Veffréttabréf til leiðbeinenda og fræðslufulltrúa
- Veffréttabréf feb. 2009
- Veffréttabréf mars 2009
- Veffréttabréf apríl 2009
- Veffréttabréf maí 2009
- Veffréttabréf júní 2009
- Veffréttabréf ágúst 2009
- Veffréttabréf sept 2009
- Veffréttabréf október 2009
- Veffréttabréf nóvember 2009
- Veffréttabréf desember 2009
- Veffréttabréf janúar 2010
- Veffréttabréf febrúar 2010
- Veffréttabréf til leiðbeinenda og fræðslufulltrúa 2010
- Veffréttabréf mars 2010
- veffréttabréf apríl 2010
- Veffréttabréf maí 2010
- Veffréttabréf júní 2010
- Veffréttabréf ágúst 2010