Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf apríl 2011
Nám í samstarfi við framhaldsskóla næsta haust
Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á öflugt starfsnám í samstarfi við framhaldsskóla sem getur skipt sköpum fyrir starfsferil margra félagsmanna. Þar sem hér er um langt eininganám að ræða þarf að huga að ýmsu áður en ákvörðun er tekin og sækja um með góðum fyrirvara.
Brúarnám fyrir verðandi félagsliða
Með svokölluðu brúarnámi er verið að viðurkenna starfsreynslu fólks og þátttöku í starfstengdri símenntun. Starfsmennt býður upp á brúarnám í samstarfi við Borgarholtsskóla fyrir verðandi félagsliða þar sem starfsreynsla er metin til styttingar á félagsliðabraut. Annars vegar er um staðbundið nám að ræða og hinsvegar dreifnám sem fer að mestu fram á netinu. Námið byrjar strax næsta haust og má sækja umsóknareyðublöð á heimasíðu Starfsmenntar en þeim ber að skila til Borgarholtsskóla fyrir 1. júní nk. ásamt fylgigögnum. Nánari upplýsingar hér.
Brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara
Starfsmennt býður upp á 3ja anna brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara í samvinnu við Fjölbrautaskólann við Ármúla þar sem starfsreynsla er metin inn í dagskólanám eða fjarnám. Forkröfur inn í námið eru að hafa 4 ára starfsreynslu að baki hið minnsta sem hjúkrunar- og móttökuritari og hafa lokið 120 stundum í sérhæfðri fræðslu. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má nálgast á heimsíðu Starfsmenntar og ber að skila umsóknum til Fjölbrautskólans við Ármúla fyrir 31. maí 2011. Fjarnám má sækja um aðeins síðar og hér má fá allar nánari upplýsingar.
Skrifstofubraut I og II
Skrifstofubraut I og II er ætluð skrifstofufólki í margvíslegum störfum og miðar að því að efla almenna og sérhæfða færni í íslensku, ensku, bókhaldi, skipulagi og stýringu verkefna. Námið er haldið í samstarfi við MK og er hvor braut alls 33 einingar (þ.e. 2-3 annir). Hægt er að velja um tvennskonar kennsluform: 1) Fjarnám á Skrifstofubraut I á 1. önn og 3. önn og fjarnám fyrir þá sem lengra eru komnir á Skrifstofubraut II – 1 önn. Einnig er boðið upp á staðbundið nám alla morgna frá 3. sept. og er þá hægt að ljúka náminu á einu ári en allar skráningar fara fram hjá Starfsmennt og á tenglum hér fyrir ofan. Skrifstofufólk með langa starfsreynslu og góða undirstöðu getur óskað eftir að fara í raunfærnimat til styttingar á námsbrautinni og skrá sig þá hér. Umsóknarfrestur er til 3. júní.
Starfsnám stuðningsfulltrúa – góður grunnur að göfugu starfi
Hér er um metnaðarfullt starfsnám að ræða sem eflir fagmennsku starfsfólks sem vinnur á félags- og heilbrigðissviði og opnar fyrir ýmsa möguleika til starfsþróunar eða á frekara námi. Námið er ætlað þeim sem vinna með fötluðum, öldruðum eða sjúkum, eða hyggja á störf á þeim vettvangi. Í boði er grunnnám sem hefst 5. september og þar sem námið er 160 stundir þarf að sækja um fyrir 15. júlí. Framhaldsnámið er 80 stundir og hefst 26. sept. í Reykjavík og hér má skrá sig til leiks og skoða myndir af ánægðum síðasta útskriftarhópi. Að venju eru báðar þessar námsleiðir félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu sem samningsbundinn réttur til starfsþróunar.
Rúsínurnar í pylsuendanum þetta vorið
Nám í mannauðsstjórnun (32 stundir)
Hér er boðið upp á stutt nám í mannauðsstjórnun þar sem sjónum er beint að vinnustaðnum, fólkinu og samskiptum þess. Megintilgangur námsins er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauði út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana. Kynnt eru hugtök eins og starfsánægja, starfsþróun, hæfni, hvatning og stjórnunarstílar og hentar námskeiðið öllum þeim sem áhuga hafa á fræðslu- og mannauðsmálum. Kennsla hefst í Endurmenntun HÍ þann 12. maí og er kennt í 2 samliggjandi daga sem hentar þeim sem koma langt að.
Fjarkennd tölvuunámskeið um Word og Hugarkort
Enn er hægt að skrá sig á 26 stunda fjarkennd tövlunámskeið sem hefjast 15. apríl. Hægt er að afla sér viðbótarþekkingar um möguleika Word sem er grunnforrit í allri ritvinnslu og skrá sig hér. Eða kynnast rafrænni skipulagningu og myndrænni framsetningu hugmynda í Hugarkortsnámskeiði sem kennir öðruvísi vinnubrögð. Þessi námskeið eru stutt, snörp og hagnýt eins og meðmælin hér bera með sér.
Áhugasviðsgreining fyrir atvinnuleitendur
Starfsmennt á í miklu samstarfi við Vinnumálastofnun um margskonar þjónustu við atvinnuleitendur innan BSRB. Vinnumálastofnun greiðir fyrir þátttöku atvinnuleitenda inn á fjölmörg námskeið Starfsmenntar og þar á meðal námskeið um áhugasviðsgreiningu sem hefst 14. apríl. Þar gefst einstaklingum færi á að kortleggja áhuga sinn í einkaviðtali við náms- og starfsráðgjafa og skoða möguleika sína út frá því. Litið er á þessa þjónustu náms- og starfsráðgjafa sem sjálfsagt úrræði fyrir alla sem velta fyrir sér símenntun og möguleikum til starfsþróunar og geta allir félagsmenn innan BSRB pantað einkatíma hjá Starfsmennt og fengið frekari upplýsingar á skrifstofu.
Fræðslufundur um Menntakerfi fyrir alla
Starfsmennt hélt vel heppnaðan fræðslufund um Menntakerfi fyrir alla- jafngildi og gæði náms sem var afar vel sóttur og komust færri að en vildu. Á fundinum voru kynntar leiðir Skota til að samræma menntaleiðir þannig að allt nám gildir hvar sem það er stundað. Einnig kynntu flestir fullorðinsfræðsluaðilar námsframboð sitt og áttu góðan dag saman. Hér má sjá myndir af fundinum og nálgast glærur sem gefa gott yfirlit yfir þjónustu símenntunarmiðstöðva og fræðslusetra um allt land.