Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

 

 

 

 

 

 

smennt_jol_2008_180x140_pix

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

        kongull_fordi_04

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

hindrun

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Veffréttabréf desember 2011

Nú er kjörið að huga að námi næsta vors, skoða framboðið og skrá sig. Upplýsingar um öll þau fjölbreyttu námskeið sem Starfsmennt býður upp á vorið 2012 eru nú aðgengilegar á vef setursins, www.smennt.is. Hvort sem þú hefur áhuga á stuttum fyrirlestrum fyrir starfsfólk, lengri námsleiðum hannaðar sérstaklega fyrir stofnanir og starfshópa eða almenn þverfagleg námskeið ættir þú að finna eitthvað sem hentar.
Opnað hefur verið fyrir skráningar á flest námskeiðin og er ráð að skrá sig sem fyrst þar sem oftar en ekki komast færri að en vilja. Námsleiðirnar sem eru í boði henta bæði þeim sem vilja styrkja starfsgrundvöll sinn í núverandi starfi eða eru að söðla um og sækja á nýjan vettvang. Og að venju þá er allt nám félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu en einnig opið öðrum.
Smelltu hér til að fara á heimasíðu Starfsmenntar og skoða öll námskeið í boði.

Lærðu að stýra, skapa og skipuleggja


Ef þú vilt fá tækifæri til að verða öruggari í framkomu, efla leiðtogahæfileika þína og stuðla að breytingum á jákvæðan hátt er þetta nám fyrir þig.

Á Talsmanni breytinga fá þátttakendur þjálfun í að hvetja samstarfsmenn til náms og ráðleggja stjórnendum hvernig efla megi mannauð stofnana. Lögð er áhersla á frumkvæði, umbótavilja og hvernig skapa megi nýtt vinnulag í samstarfi starfsmanna og stjórnenda. Einnig er rík áhersla á mikilvægi símenntunar og eru nýjar áherslur og möguleikar kynntir þátttakendum. Námið hentar öllum sem hafa áhuga á velferð samstarfsfólks síns og innleiðingu breytinga en þar eru veitt öflug tæki til að vinna með sjálfa sig og aðra, miðla málum og miða áfram.
Námskeiðið stendur frá 22. feb. – 2. apríl. Kennt verður alla miðvikudaga kl. 16:15-19:00 og föstudaga kl. 9:15-12:00, hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig.

50+ Hagnýtt nám í lífi og starfi


Hér er á ferðinni einnar annar nám, ætlað fólki um og yfir fimmtugu sem vill efla sig í lífi og starfi. Námið er sérstaklega sniðið að þeim sem búa yfir mikilli reynslu og þekkingu án þess að hafa það endilega skjalfært með formlegum prófum. Það hentar einnig þeim sem starfa við skrifstofustörf eða hyggja á störf á þeim vettvangi. Kennslugreinar eru bókhald, enska, íslenska, tölvur, námstækni og sjálfsstyrking.
Námið hefst 10. janúar, kennt er frá kl. 15.15 - 18.00 fjóra daga vikunnar í Menntaskólanum í Kópavogi við Digranesveg.
Umsóknarfrestur er til 4. janúar.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig.

Starfstengdar námsleiðir

Starfsnám stuðningsfulltrúa

Á vorönn verður boðið upp á bæði grunn- og framhaldsnámskeið í Starfsnámi stuðningsfulltrúa. Um ræðir framúrskarandi námsleið fyrir alla sem koma að umönnun fatlaðra, aldraðra og sjúkra. Í náminu er lögð áhersla á að auka faglega vitund, þekkingu og færni þátttakenda. Aðeins þeir sem lokið hafa grunnnámi starfsnáms stuðningsfulltrúa geta skráð sig í framhaldsnámið.
Grunnnámið hefst 23. janúar og framhaldsnámið 13. febrúar. Námskeiðin eru kennd aðra hverja viku, frá kl. 8:30-12:00.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig.

Áfangar


Áfangar er námsleið fyrir alla starfandi fangaverði. Ráðgert er að kenna fjögur námskeið á vorönn 2012: Skyndihjálp - smitsjúkdómar, Afbrigðileg hegðun fanga - þunglyndi, geðraskanir og fíkn, Sjálfsstyrking og starf fangavarða og Ákveðniþjálfun. Kennt verður á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, á Selfossi og fjarfundur til Akureyrar og Grundarfjarðar.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsinga um námskeiðin og skrá þig.

Launaskólinn


Launaskólinn er 84 stunda nám þar sem reynt er að gefa heildarsýn yfir starfssvið launafulltrúa, kjaramál og réttindi launþega. Náminu er skipt upp í fjögur þemu og verða þau öll í boði á vorönn 2012. Hvert þema samanstendur af nokkrum sjálfstæðum námskeiðum og þurfa þátttakendur að skrá sig á vef Starfsmenntar í hvert námskeið sem þeir hyggjast taka. Fyrstu námskeiðin hefjast í byrjun febrúar og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um námskeiðin, skoða dagsetningar og skrá þig.

Síðustu forvöð að skrá sig - Nám í samstarfi við framhaldsskóla

Fræðslusetrið Starfsmennt hefur um árabil boðið upp á nám í samstarfi við framhaldsskóla landsins. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir það nám sem er í boði á komandi vorönn.

Félagsliðabrú


Starfsmennt býður upp á námsbrú fyrir verðandi félagsliða í samstarfi við Borgarholtsskóla. Brúin felur í sér mat á námi félagsliðabrautar sem í heildina er 78 einingar niður í 32 einingar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Umsóknarfrestur rennur út á morgun, miðvikudaginn 7. desember. Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Starfsmenntar og Borgarholtsskóla.

Heilbrigðisritarabrú


Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á námsbrú fyrir verðandi heilbrigðisritara í samvinnu við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Brúin felur í sér mat á fyrra námi /símenntun og starfsreynslu sem styttir námsbraut heilbrigðisritara úr 80 einingum niður í 33 einingar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Umsóknarfrestur er til 12. desember 2011. Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vef Starfsmenntar og FÁ.

Skrifstofubraut


Skrifstofubraut er mjög hagnýtt 33 eininga nám sem dreift er á þrjár annir. Hægt er að velja milli þess að taka námið í fjarnámi og staðnámi. Markmið námsins er að auka þekkingu og færni skrifstofufólks til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni sem einkenna nútímastarfsumhverfi. Áhersla er lögð á undirstöðuatriði í bókhaldi, íslensku, ensku og tölvufærni.
Skráningu á vef Starfsmenntar lýkur fyrir jól þar sem námið hefst í byrjun janúar. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig.

Náms- og starfsráðgjöf

Fræðslusetrið Starfsmennt býður öllum félagsmönnum sínum upp á náms- og starfsráðgjöf þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun og er sérstaklega mikilvæg þeim sem nú takast á við breytingar á vinnumarkaði. Ráðgjöfin nýtist einnig öllum þeim sem á einhvern hátt standa á tímamótum og eru að takast á við breytt hlutverk eða verkefni.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar eða hafðu samband í síma 550-0060.

Fjarkennt tölvunám

Ein vinsælustu námskeið Starfsmenntar hafa verið fjarkennd tölvunámskeið sem nýst hafa víðsvegar um landið. Námskeiðunum er ætlað að efla almennt tölvulæsi starfsmanna og auka þannig sjálfsbjargarviðleitni þeirra og möguleika til að takast á við sérhæfðari aðgerðir. Nemendur hafa aðgang að kennara í síma alla daga og hann tryggir að tæknilegir örðugleikar hindri ekki þátttöku. Hér má sjá þau 9 námskeið sem eru í boði á vorönn en þau samanstanda af Grunnnámskeiði (80 stundir) og 26 stunda framhaldsnámskeiðum um: Word, Excel, Outlook, PowerPoint, Myndvinnslu, Publisher, Fjársjóðinn Google og Hugarkort (mindmapping). Hér er kjörið tækifæri til að styrkja tölvufærni sína heiman frá!



starfsmennt_3