Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

 

 

 

               blomapottur

          www.smennt.is

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

         veidimadur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

fiskur_i_vok

    Símenntun - opnar

           nýjar leiðir        


Veffréttabréf febrúar 2011

Sókn er besta vörnin! Í erfiðu árferði getur símenntun verið ómetanlegur þáttur í því að efla sjálfstraust og þol starfsmanna undir álagi. Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á fjölbreytt úrval námsleiða, bæði þverfagleg námskeið sem eru öllum opin, sem og sérsniðið nám fyrir einstaka stofnanir þar sem fræðslan er samofin störfunum. Að auki býður Starfsmennt stofnunum uppá ýmsa sérhæfða þjónustu, s.s. farandfyrirlestra og Ráðgjafa að láni sem er aðlöguð að þörfum þeirra og fer fram á vinnustað. Námskeiðin eru öllum félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu en einnig opin öðrum gegn gjaldi. Enn er hægt að skrá sig í fjölda námsleiða sem efla almenna og eftirsótta starfshæfni.

Tölvunámið framundan


Eins og undanfarin ár býður Starfsmennt upp á fjarkennd tölvunámskeið. Námskeiðin hafa notið mikilla vinsælda enda taka þau á ólíkum þáttum tölvunotkunar. Bæði er boðið upp á grunnnámskeið fyrir byrjendur þar sem farið er yfir grunninn í vinsælum forritum, sem og 8 ólík framhaldsnámskeið fyrir þá sem vilja auka enn við þekkingu sína. Núna á föstudaginn hefjast tvö námskeið, Grunnnám og Outlook. Hér má finna allar nánari upplýsingar um námskeiðin ásamt upplýsingum um hvernig fjarnámið fer fram.

Spennandi starfstengt nám fyrir alla


Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum


Þessi 52 stunda námsleið hefur hlotið frábærar viðtökur en markmið hennar er að auka stjórnunar- og skipulagshæfni þátttakenda. Áhersla er á sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleika ásamt samskipta- og leiðtogahæfni. Námið hefst 7. mars hjá Endurmenntun HÍ, en boðið verður upp á fjarkennslu á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum.  Hér má fá nánari upplýsingar um námið eða prenta út auglýsingu fyrir vinnustaði. 

Verkefnastjórnun


Góð verkefnastjórnun getur skipt sköpum þegar halda á utan um viðamikil verk. Í þessu 24 stunda námskeiði er hugmyndafræði verkefnastjórnunar kynnt  ásamt því að farið er yfir helstu aðferðir, tól og tæki en sérstök áhersla er lögð á samskiptaþáttinn og greitt flæði upplýsinga. Þetta hnitmiðaða námskeið leggur góðan grunn sem dýpka má síðar í áföngum. Námið hefst 26. apríl hjá Endurmenntun HÍ en boðið verður upp á fjarkennslu á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum.

Talsmaður breytinga – síðustu dagar skráninga


Framkvæmd og framsetning getur skipt sköpum um hvernig til tekst við innleiðingu breytinga. Talsmaður breytinga er 76 stunda námsleið sem ætlað er að styðja starfsfólk og stjórnendur í þessu ferli og hentar námið þeim sem sýnt hafa samskiptafærni, umbótavilja og hafa áhuga á símenntun.
Kynntar eru leiðir til að hafa áhrif á, þróa, breyta og skapa nýtt vinnulag. Þátttakendur eru þjálfaðir í að veita forystu og styðja við jafningja með því  að tengja saman ólík stjórnunarlög. Námið hefst 23. febrúar hjá Endurmenntun HÍ og verður kennt á miðvikudögum kl. 16.15-19.00 og föstudögum kl. 9.15-12.00. Hér má sjá yfirlit yfir helstu námsþætti og  skrá sig til þátttöku.

Þjónustustjórnun- fjarnám


Á þessu 6 stunda örnámskeiði gefst þátttakendum kostur á að horfa á sex afar fræðandi og skemmtilega myndbönd um hvað einkennir góða þjónustu og hvað ber að varast. Námskeiðið hefst 1. mars og lýkur með heimaverkefni mánuði síðar. Smelltu hér til að skrá þig.

Að tjá sig án kvíða


Þetta 16 stunda námskeið er ætlað þeim sem vilja ná tökum á frammistöðukvíða eða auka öryggi sitt í flutningi máls. Farið verður í undirstöðu góðrar raddbeitingar og framsagnar s.s. öndun, líkamsstöðu og notkun talfæra. Kennsla hefst 14.  mars í Reykjavík.

Árangursrík kennsla - fyrir kennara, leiðbeinendur og fræðslufulltrúa


Reynslan hefur sýnt að það er mikill munur á því að kenna fullorðnum námsmönnum og ungmennum. Sjónarhorn, viðhorf og reynsla fullorðinna námsmanna er sérstök og mikilvægt er að beita fyrir sig fleiri en einni aðferð við kennslu og mat. Hér er fagfólki hjálpað við að verða enn meiri fagmenn á sviði fullorðinsfræðslu. Allir þeir sem unnið hafa fyrir eða kennt á vegum Starfsmenntar býðst að sækja þetta 20 stunda námskeið þeim að kostnaðarlausu og er bent á að hafa beint samband við skrifstofu Starfsmenntar. Kennsla hefst 2. mars og er hluti fjarkenndur.

Nýr vettvangur – nám fyrir atvinnuleitendur


Starfsmennt býður áfram upp á röð námskeiða sem ætlað er að styrkja stöðu þátttakenda á vinnumarkaði með því að auka sjálfsþekkingu, starfshæfni og námsáhuga. Námskeiðin eru einkum ætluð atvinnuleitendum og er áhersla á að vekja einstaklinginn til vitundar um þróun starfa og starfsumhverfis, og efla þor til að greina nýjar leiðir úr erfiðri stöðu. Um er að ræða 18 sjálfstæð námskeið sem haldin eru í BSRB húsinu á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum alla vorönnina. Hér má sjá lista yfir námskeiðin og skrá sig til leiks.  Á næstu námskeiðum verður fjallað um: Að geta talað máli sínu, Áföll og vá og Að takast á við breytingar. Kennt er frá kl. 10-13 og þátttakendum boðið í hádegismat.


Fræðslufundur um Menntakerfið fyrir alla – jafngildi náms

Fræðslufundur um jafngildi náms og gegnsætt menntakerfi sem tryggir mat á námi fullorðinna, hvar sem það er stundað, verður haldinn í BSRB húsinu fimmtudaginn 3. mars kl. 9-15. Fjallað verður um þróun og stöðu heildstæðs menntakerfis sem metur til jafns námsþáttöku innan framhaldsskóla, fullorðinsfræðslu og á vinnustöðum. Einnig verður skoðað hvernig ný hugsun um hæfni, þrepaskiptingu náms og lærdómsviðmið getur auðveldað samstarf fræðsluaðila til að viðurkenna nám og réttindi þvert á kerfi eða lönd.

Fundurinn er ætlaður fræðsluaðilum og stjórnendum menntastofnana með sérstakri áherslu á náms- og starfsráðgjafa sem geta gert gæfumuninn í lífi fullorðinna ráðþega í leit að námi við hæfi. Leitað verður í smiðju Skota sem hafa reynslu af innleiðingu samhæfðra námseininga sem yfirfærast milli ólíkra námssviða í samstarfi allra hagsmunaaðila. Gestur fundarins verður Margret Cameron sem er framkvæmdastjóri Scottish Credit and Qualification Framework sem hafa langa reynslu af þverfaglegu samstarfi við mat á námi. Kynnt verður sambærileg vinna á Íslandi og fjölbreytt þjónusta fullorðinsfræðsluaðila og starfsmenntasjóða stéttarfélaga sem styðja við nám fullorðinna.

Hér má sjá dagskrá fundarins.
Hér má skrá sig á fundinn sem er þátttakendum að kostnaðarlausu.



 kikir