Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf janúar 2012
Nú þegar daginn er tekið að lengja á ný er tilvalið að horfa fram á við og kynna sér öll þau námskeið sem Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á. Námsvísir vorannar 2012 er kominn í hús til félagsmanna og að venju er þar að finna fjölbreytt úrval starfstengdra námskeiða ásamt upplýsingum um aðra þjónustu sem setrið býður stofnunum og einstaklingum. Í boði eru bæði þverfagleg námskeið og stofnananám sem efla starfshæfni og sérhæfingu. Auk þess er boðið upp á fjölda farandfyrirlestra og nýtt nám til að mæta breyttum kröfum og aðstæðum.
Hér fyrir neðan má sjá hluta þeirra námskeiða sem boðið er upp á en allar nánari upplýsingar um bæði nám og þjónustu er á heimasíðunni, www.smennt.is. Að venju er allt nám félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu og í flestum tilfellum opið öðrum gegn gjaldi.
Lífsbraut – Þekkingarbrot um siðferðilegar og þjóðfélagslegar átakalínur– NÝTT
Lífsbraut er afar nýstárlegt nám um nútímaumræðu og sniðið að þörfum þeirra sem vilja kynnast málefnum er varða uppbyggingu samfélags og samskipta betur. Fjallað verður um heimspekileg, siðferðileg, efnahagsleg og félagsleg álitamál og rætt um helstu áhrifavalda sem móta umhverfi okkar og samfélagsgerðirMeðal þeirra spurninga sem leitað verður svara við eru:
• Hvaða máli skiptir sjónarhorn atburða og umræðu?
• Hvernig má meta trúverðugleika upplýsinga og hvernig er rætt um sannleika?
• Af hverju á gagnrýnin hugsun undir högg að sækja?
• Af hverju eru breytingar illa séðar þó að við vitum að allt er breytingum háð?
• Hvernig geta listir og menning breytt samfélögum?
• Af hverju skiptir menntun svona miklu máli?
• Hvaða áhrif mun aukin alþjóðavæðing og tækniframfarir hafa á líf okkar?
Kennsla hefst 12. mars hjá EHÍ. Smelltu hér til að skrá þig og fá nánari upplýsingar.
Talsmaður breytinga eflir lærdómsstofnanir
Þetta 76 stunda nám snýst um að efla lærdóm og námsmenningu innan stofnana. Góð samskipti og skilningur á mikilvægi þess að uppfæra þekkingu og aðlagast skiptir miklu máli í dag og nám felur í sér að geta breytt viðhorfum eða hegðun. Náminu er ætlað að styðja starfsfólk og stjórnendur í þessu ferli og hentar þeim sem sýnt hafa samskiptafærni, umbótavilja og hafa áhuga á símenntun. Kynntar eru leiðir til að hafa áhrif á, þróa, breyta og skapa nýtt vinnulag.Námið hefst 22. febrúar hjá Endurmenntun HÍ og verður kennt á miðvikudögum kl. 16.15-19.00 og föstudögum kl. 9.15-12.00. Hér má sjá yfirlit yfir helstu námsþætti og skrá sig til þátttöku.
Ársaðgangur að tölvunámskeiðum – NÝTT
Starfsmennt hefur nú farið í samstarf við Tölvunám.is og býður öllum aðildarfélögum ársaðgang að kennsluvef þeirra. Á vefnum er boðið upp á ítarlegt yfirlit aðgerða sem byggir á stuttum innslögum sem þátttakendur geta nýtt sér samhliða tölvuvinnslu í eigin starfi. Markmið kennsluvefsins er að notendur geti bjargað sér sjálfir og lært á hugbúnaðinn á eigin spýtur.Á vefnámskeiðinu er opið fyrir aðgang að öllum eftirtöldum forritum: Excel, Word, Outlook, PowerPoint, Access, Office 2010, Photoshop, Lotus Notes. Opnað verður fyrir ársaðganginn fjórum sinnum yfir árið: 1. feb., 1. mars, 1. okt. og 1. nóv. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar.
Fjarkennt tölvunám með persónulegri aðstoð
Auk þessara vefnámskeiða er enn boðið upp á hin sívinsælu fjarnámskeið þar sem kennari veitir aðstoð og persónulega leiðsögn m.a. í síma svo enginn þarf að hætta vegna tæknilegra hindrana. Boðið upp á 80 stunda grunnnám ásamt framhaldsnámskeiðum sem hvert um sig er 26 stundir í eftirtöldum forritum: Outlook, Excel, Power-Point, Publisher, Word, Google notkun og gerð hugarkorta.
Fyrstu námskeiðin, Grunnnámskeið og Outlook hefjast 7. febrúar. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig til leiks.
Nýr vettvangur – breytt starf!
Eins og undanfarin misseri býður Starfsmennt þeim félagsmönnum misst hafa vinnuna eða hyggja á nýjan starfsvettvang upp á röð námskeiða. Um er að ræða úrval sjálfstæðra námskeiða sem haldin eru í BSRB húsinu á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10-13 alla vorönnina. Markmiðið með náminu er að styrkja stöðu þátttakenda á vinnumarkaði með því að auka sjálfsþekkingu, starfshæfni og námsáhuga. Boðið verður upp á léttan hádegisverð en hér má sjá yfirlit yfir öll námskeiðin og hér má skrá sig til leiks.
Fyrsta námskeiði um Eflingu sjálfstrausts og sjálfsöryggi hefst 14. febrúar. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig á námskeiðin.
Verkefnastjórnun-hagnýtt og hnitmiðað
Góð verkefnastjórnun getur skipt sköpum þegar halda á utan um viðamikil verk. Í þessu 24 stunda námskeiði er hugmyndafræði verkefnastjórnunar kynnt ásamt því að farið er yfir helstu aðferðir, tól og tæki en sérstök áhersla er lögð á samskiptaþáttinn og greitt flæði upplýsinga. Þetta hnitmiðaða námskeið leggur góðan grunn sem dýpka má síðar í áföngum. Námið hefst 15. febrúar nk. hjá Endurmenntun HÍ og er kennt á miðvikudögum kl. 13-16. Enn er hægt að skrá sig hér.
Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla innan BSRB
Fræðslusetrið Starfsmennt býður öllum félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun og fara viðtölin fram á skrifstofu Starfsmenntar. Hér má sjá hvað náms- og starfsráðgjöf er og hvernig á að panta tíma. Náms- og starfsráðgjöf er sjálfsögð þjónusta fyrir fólk á öllum aldri til að ákveða næstu skref í lífi og starfi. Hafið samband og pantið tíma í síma 550-0060