Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

 

 

 

   veidimadur

 

 

               fiskur_i_vok

 

 

 

 

 

 

 

 

smennt_lauf_smennt_02

 

 

 

 

 

 

 

 

 

     blagresi


Veffréttabréf júní 2011

Okkur hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt er ánægja að tilkynna að við höfum flutt í nýtt húsnæði að Ofanleiti 2, 5. hæð, 103 Reykjavík. Þá höfum við fengið nýtt símanúmer 550-0060 og faxnúmer 550-0069. Að venju höldum við áfram að búa til starfstengt nám fyrir stofnanir og starfshópa sem að við höldum í samstarfi við fræðsluaðila um allt land.

Starfsnám stuðningsfulltrúa – skráðu þig fljótlega

Starfsnám stuðningsfulltrúa, grunn- og framhaldsnám getur opnað þér ýmsar leiðir til að efla þig í starfi á hinu ört stækkandi sviði félags- og heilbrigðisgreina. Hér er  um metnaðarfullt starfsnám að ræða sem eflir fagmennsku starfsfólks sem vinnur á félags- og heilbrigðissviði og opnar fyrir ýmsa möguleika til starfsþróunar eða á frekara námi. Námið er ætlað þeim sem vinna með fötluðum, öldruðum eða sjúkum, eða hyggja á störf á þeim vettvangi. Í boði er grunnnám sem hefst 5. sept. og þar sem námið er 160 stundir þarf að sækja um fyrir 15. júlí. Framhaldsnámið er 80 stundir og hefst 26. sept. í Reykjavík. Opið er fyrir skráningar í grunnnámið hér og framhaldsnámið hér og hér má prenta út auglýsingu. Að venju eru báðar þessar námsleiðir félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu sem samningsbundinn réttur til starfsþróunar, en námið er einnig opið öðrum gegn gjaldi.

Raunfærnimat fyrir verðandi félagsliða

Næsta haust hefst metnaðarfullt þróunverkefni þar sem raunfærni verðandi félagsliða er metin til eininga í framhaldsskóla og þannig tryggt að hver og einn hefji nám á félagsliðabraut á einstaklingsgrunni. Faglegt mat á þekkingu, hæfni og reynslu hvers og eins tryggir einstaklingsnálgun í námsvali þar sem viðurkennt er að að fræðsluþarfir fullorðinna starfsmanna eru mismunandi og leið í frekara fagnám er greiðari. Nánar verður sagt frá þessu verkefni í haust en forsenda þess að taka þátt í matinu er að: 1) vera 23 ára, 2) hafa starfað í 3 ár við umönnun og 3) hafa lokið starfsnámi stuðiningsfulltrúa. Við hjá Starfsmennt viljum hvetja alla þá sem uppfylla þessi skilyrði að  velta þessum möguleika fyrir sér og fylgjast vel með næstu veffréttabréfum. 

Nýtt sérhæft eininganám næsta haust

Starfsmennt býður félagsmönnum upp á sérhæfðar námsleiðir í samstarfi við Mennaskólann í Kópavogi og Háskólann á Akureyri þar sem komið er til móts fjölbreyttar fræðsluþarfir okkar ört stækkandi markhóps. Námið er metið til eininga og getur leitt til áframhaldandi náms, nýrra starfa eða meira öryggis í núverandi starfi.

50+ - hagnýtt nám í lífi og starfi


Þessi 11 eininga námsleið er sérsniðin að þörfum fullorðinna sem búa yfir mikilli starfsreynslu og þekkingu án þess að hafa það endilega skjalfest með formlegum prófum. Námið nýtist einnig til upprifjunar, treystir undirstöður þátttakenda í grunnfögum og eflir almenna starfshæfni. Helstu námsþættir eru íslenska, enska, tölvur, námstækni, bókhald og sjálfsefling. Námið hefst 12. sept. og er kennt frá 15.15-18 í eina önn og hér geta félagsmenn skráð sig og fengið nánari upplýsingar.

Markaðsetning vöru og þjónustu


Hafa kynningarmál og auglýsingafræði alltaf heillað þig? Starfsmennt hefur samið við HA um að bjóða upp á 36 stunda nám um Markaðssetningu vöru og þjónustu. Markmið námsins er að auka skilning þátttakenda á hlutverki faglegs markaðsstarfs og gefa yfirsýn yfir helstu aðferðir, hugtök og áherslur. Námið hefst 14. sept. og er ætlað öllum sem starfa við sölu- og markaðssetningu á vöru og þjónustu eða hyggja á störf á þeim vettvangi. Námið hentar einnig  þeim sem áhuga hafa á ferðamálafræðum, viðburðastjórnun, þjónustustjórnun eða kynningar- og útgáfumálum. Félagsmenn aðildarfélaga geta skráð sig hér fyrir lok júní.

Skrifstofubraut I og II

Skrifstofubraut I og II er ætluð skrifstofufólki í margvíslegum störfum og miðar að því að efla almenna og sérhæfða færni í íslensku, ensku, bókhaldi, skipulagi og stýringu verkefna. Námið er haldið í samstarfi við MK og er hvor braut alls 33 einingar (þ.e. 2-3 annir). Hægt er að velja um tvennskonar kennsluform: 1) Fjarnám á Skrifstofubraut I á 1. önn og 3. önn og fjarnám fyrir þá sem lengra eru komnir á Skrifstofubraut II – 1 önn.  Einnig er boðið upp á staðbundið nám alla morgna frá 24. ágúst og er þá hægt að ljúka náminu á einu ári en allar skráningar fara fram hjá Starfsmennt og á tenglum hér fyrir ofan. Skrifstofufólk með langa starfsreynslu og góða undirstöðu getur óskað eftir að fara í raunfærnimat til styttingar á námsbrautinni og skrá sig þá hér.

Annað spennandi nám næsta haust


Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum (52 stundir)

Viltu læra að stýra, skipuleggja og skapa ný sjónarhorn eða verklag? Upplýsingar og skráning hér.

Talsmaður breytinga (76 stundir)

Viltu efla lærdóm á þínum vinnustað og taka þátt í breytingum? Upplýsingar og skráning hér.

Fjölbreytt úrval almennra námskeiða

Búið er að opna fyrir skráningu á fjölda þverfaglegra námskeiða sem varða tungumál, samskipti, sjálfsþekkingu, stjórnun, þjónustu og meðferð upplýsinga. Sjá hér.

Fjarkennt tölvunám

Næsta haust er í boði langt grunnnám og átta styttri framhaldsnámskeið sem efla þá tölvufærni sem öllum er nauðsynleg í dag.

Allt nám er félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu en oft opið öðrum gegn gjaldi. Nánari upplýsingar á vef og á skrifstofu Starfsmenntar í síma 550-0060.



Smennt_banner_2010B_10