Yfirlit námsleiða og þjónustu
Útskrift vor 2011
Starfsnám stuðningsfulltrúa
Símenntun markar ný spor
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf maí 2011
Starfsnám stuðningsfulltrúa – grunnur að göfugu starfi
Starfsnám stuðningsfulltrúa, grunn- og framhaldsnám getur opnað þér ýmsar spennandi leiðir til að efla þig í starfi á hinu ört stækkandi sviði félags- og heilbrigðisgreina. Hér er um metnaðarfullt starfsnám að ræða sem eflir fagmennsku starfsfólks sem vinnur á félags- og heilbrigðissviði og opnar fyrir ýmsa möguleika til starfsþróunar eða á frekara námi. Námið er ætlað þeim sem vinna með fötluðum, öldruðum eða sjúkum, eða hyggja á störf á þeim vettvangi. Í boði er grunnnám sem hefst 5. september og þar sem námið er 160 stundir þarf að sækja um fyrir 15. júlí. Framhaldsnámið er 80 stundir og hefst 26. sept. í Reykjavík. Opið er fyrir skráningar í grunnnámið hér og framhaldsnámið hér og hér má prenta út auglýsingu. Að venju eru báðar þessar námsleiðir félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu sem samningsbundinn réttur til starfsþróunar, en námið er einnig opið öðrum gegn gjaldi.
Nýtt sérhæft eininganám næsta haust
Starfsmennt býður félagsmönnum upp á tvær nýjar námsleiðir í samstarfi við MK og HA þar sem komið er til móts fjölbreyttar fræðsluþarfir okkar ört stækkandi markhóps. Námið er metið til eininga og getur leitt til áframhaldandi náms, nýrra starfa eða meira öryggis í núverandi starfi.
50+ - hagnýtt nám í lífi og starfi
Þessi 11 eininga námsleið er sérsniðin að þörfum fullorðinna sem búa yfir mikilli starfsreynslu og þekkingu án þess að hafa það endilega skjalfest með formlegum prófum. Námið nýtist einnig til upprifjunar, treystir undirstöður þátttakenda í grunnfögum og eflir almenna starfshæfni. Helstu námsþættir eru íslenska, enska, tölvur, námstækni, bókhald og sjálfsefling. Námið hefst 12. september og er kennt frá 15.15-18 í eina önn og hér geta félagsmenn skráð sig og fengið nánari upplýsingar.
Markaðsetning vöru og þjónustu
Starfsmennt hefur samið við Háskólann á Akureyri um að bjóða upp á 36 stunda nám um Markaðssetningu vöru og þjónustu. Markmið námsins er að auka skilning þátttakenda á hlutverki faglegs markaðsstarfs og gefa yfirsýn yfir helstu aðferðir, hugtök og áherslur. Námið hefst 14. sept. og er ætlað öllum sem starfa við sölu- og markaðssetningu á vöru og þjónustu eða hyggja á störf á þeim vettvangi. Námið hentar einnig þeim sem áhuga hafa á ferðamálafræðum, viðburðastjórnun, þjónustustjórnun eða kynningar- og útgáfumálum. Félagsmenn aðildarfélaga geta skráð sig hér fyrir lok júní.
Hagnýt starfstengd menntun
Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á öflugt starfsnám í samstarfi við framhaldsskóla sem getur skipt sköpum fyrir starfsferil margra félagsmanna og veitt starfsréttindi. Sækja þarf um námið sem fyrst til að tryggja sér pláss en umsóknarfrestur rennur oftast út í júní.
Brúarnám fyrir verðandi félagsliða
Með svokölluðu brúarnámi er verið að viðurkenna starfsreynslu fólks og þátttöku í starfstengdri símenntun. Starfsmennt býður upp á brúarnám í samstarfi við Borgarholtsskóla fyrir verðandi félagsliða þar sem starfsreynsla er metin til styttingar á félagsliðabraut. Annars vegar er um staðbundið nám að ræða og hinsvegar dreifnám sem fer að mestu fram á netinu. Námið byrjar strax næsta haust og má sækja umsóknareyðublöð á heimasíðu Starfsmenntar en þeim ber að skila til Borgarholtsskóla fyrir 1. júní nk. ásamt fylgigögnum. Nánari upplýsingar hér.
Brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara
Starfsmennt býður upp á 3ja anna brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara í samvinnu við Fjölbrautaskólann við Ármúla þar sem starfsreynsla er metin inn í dagskólanám eða fjarnám. Forkröfur inn í námið eru að hafa 4 ára starfsreynslu að baki hið minnsta sem hjúkrunar- og móttökuritari og hafa lokið 120 stundum í sérhæfðri fræðslu. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má nálgast á heimsíðu Starfsmenntar og ber að skila umsóknum til Fjölbrautskólans við Ármúla fyrir 31. maí 2011. Fjarnám má sækja um aðeins síðar og hér má fá allar nánari upplýsingar.
Skrifstofubraut I og II
Skrifstofubraut I og II er ætluð skrifstofufólki í margvíslegum störfum og miðar að því að efla almenna og sérhæfða færni í íslensku, ensku, bókhaldi, skipulagi og stýringu verkefna. Námið er haldið í samstarfi við MK og er hvor braut alls 33 einingar (þ.e. 2-3 annir). Hægt er að velja um tvennskonar kennsluform: 1) Fjarnám á Skrifstofubraut I á 1. önn og 3. önn og fjarnám fyrir þá sem lengra eru komnir á Skrifstofubraut II – 1 önn. Einnig er boðið upp á staðbundið nám alla morgna frá 24. ágúst og er þá hægt að ljúka náminu á einu ári en allar skráningar fara fram hjá Starfsmennt og á tenglum hér fyrir ofan. Skrifstofufólk með langa starfsreynslu og góða undirstöðu getur óskað eftir að fara í raunfærnimat til styttingar á námsbrautinni og skrá sig þá hér. Umsóknarfrestur er til 3. júní.