Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf mars 2011
Þó langt sé liðið á vetur er enn mögulegt að skrá sig á fjölda námskeiða hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt. Úrvalið er fjölbreytt, allt frá stuttum farandfyrirlestrum til heildstæðra námsleiða eða styttri þverfaglegra námskeiða – sem ætlað er að styrkja almenna starfshæfni.
Starfsmennt leggur mikla áherslu á að tryggja jafnt aðgengi félagsmanna að námskeiðum, m.a. óháð búsetu. Því er boðið upp á fjarnámskeið um allt land og ferðastyrkir greiddir þegar nám er sótt um langan veg eða kennt er á vinnustöðum. Einnig er hægt að óska eftir Ráðgjafa að láni til að vinna að margskonar mannauðseflingu innan stofnana. Þá stendur öllum félagsmönnum til boða að fá viðtöl hjá náms- og starfsráðgjafa til að viðra framtíðaráform sín en að venju er öll þjónusta Starfsmenntar félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu.
Símenntun er sjálfsefling – taktu þátt!
Nýr vettvangur fyrir atvinnuleitendur
Undanfarið hefur Starfsmennt boðið upp á röð stuttra fyrirlestra sem sérstaklega er ætluð atvinnuleitendum og þeim sem huga að breyttum starfsvettvangi. Markmið námskeiðanna er að vekja þátttakendur til vitundar um þróun starfa og starfsumhverfis, styrkja sjálfstraust og auka líkur á að landa nýju starfi. Framundan eru spennandi námskeið og má smella á nafn námskeiðs til að fá nánari upplýsingar og skrá sig. Námskeiðin eru öllum að kostnaðarlausu.
- Að sækja um starf og fá starf, 24. mars
- Færnimappa og áhugasvið, 31. mars
- Að auka persónulegan styrk sinn, 7. apríl
Rekspölur 2 (60 stundir)
Rekspalarnámskeiðin hafa notið mikilla vinsælda en á þeim er fjallað um einstaklinginn, stöðu hans og stefnu í samfélaginu. Rekspölur 2 er framundan þar sem lögð er áhersla á samfélagslega stöðu einstaklingsins, samskiptahæfni, sjálfstraust, siðfræði, rökfræði og menningarmun. Námskeiðið leggur góðan grunn að frekara námi eða þátttöku í félagsstarfi. Það hefst 8. apríl og hér má frá allar frekari upplýsingar og skrá sig til leiks.
Framrás I - fjarkennt um allt land (36 stundir)
Framrásarnámskeiðin eru tilvalin fyrir alla þá sem vilja bæta samskipti sín á vinnustað og almenna samstarfsfærni. Farið er yfir aðferðir til að taka á erfiðum samskiptamálum, stjórna streitu og efla liðsheild. Unnið er að því að efla sjálfstraust þátttakenda og verða hugtök eins og lífsleikni, persónuleg markmiðssetning og tilfinningagreind skoðuð. Þetta er hagnýtt nám sem nýtist þátttakendum bæði í starfi og einkalífi. Reyndir sérfræðingar kenna í Reykjavík frá 4. apríl en fjarkennt verður til Akureyrar, Ísafjarðar og Egilsstaða.
Verkefnastjórnun (24 stundir)
Starfsmennt býður upp á 24 stunda námskeið um verkefnastjórnun þar sem kynnt er hugmyndafræði og helstu aðferðir þessa vinsæla verklags. Farið er í mótun hugmyndar, markmiðssetningu, framkvæmdaáætlun, verkáætlun og tímaáætlun ásamt kostnaðargreiningu og kynningaráætlun. Einnig er fjallað um samskipti innan verkefna, upplýsingamiðlun og hlutverk verkefnastjóra. Námið hefst í Reykjavík 26. apríl og er fjarkennt til Egilsstaða, Akureyrar og Ísafjarðar. Námskeiðið hentar öllum þeim sem vinna við verkefnastjórn en vilja ná betri tökum á starfinu ásamt þeim sem hyggja á störf á þessum vettvangi.
Mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur (32 stundir)
Starfsemi stofnana stendur og fellur með þeim mannauði sem er til staðar og hvernig til tekst með að virkja hann til góðra verka. Til að starfsmenn skili góðu starfi þarf stefna stofnunar að vera skýr, boðleiðir greiðar og starfsmenn að vita til hvers er ætlast af þeim. Nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur hjá ríkinu er hagnýtt nám þar sem yfirsýn er gefin yfir sviðið og helstu hugtök. Á skráningarsíðunni má sjá nánari námslýsingu og allar frekari upplýsingar.
Starfstengdar námsleiðir
Starfsmennt býður fjölda starfstengdra námsleiða sem eru sérhannaðar í samstarfi við stofnanir og starfshópa. Hér má sjá yfirlit yfir helstu stofnanaskólana á þessari önn eða leita hugmynda að efnisflokkuðum námskeiðum sem geta aukið skýrleika í framboði náms. Hægt er að kalla eftir aðstoð og ráðgjöf Starfsmenntar til að setja upp allt stofnanatengt nám og nýta öflugt, rafrænt umsýslukerfi setursins til að auðvelda vinnuna.
Launaskólinn
hefur rækilega slegið gegn meðal launafulltrúa hjá ríki og bæ. Í náminu, sem skipt er upp í fjögur þemu, er farið yfir hið yfirgripsmikla regluverk og umhverfi kjarasamninga sem launafulltrúar þurfa að kunna skil á. Hér má sjá skráningarsíðu alls námsins en og skrá sig á næstu námskeið sem eru:
- Akureyri: Þema II – Vinnutími og afgreiðsla launa, 6. - 7. apríl og tvö valnámskeið 13. apríl og 14. apríl.
- Reykjavík: Þema III – Fjarvera frá vinnu, launaðar fjarvistir, 11. - 12. apríl.
- Búðardalur: Þema III - Fjarvera frá vinnu, launaðar fjarvistir - fjarfundur 11. - 12. apríl.
Áfangar fyrir fangaverði
Námskrá Áfanga, námsleiðar fyrir starfandi fangaverði hefur verið í endurskoðun undanfarna mánuði og ný námskeið hafa litið dagsins ljós. Næstu vikurnar er boðið upp á námskeiðin: Lyf og fíkniefni í fangelsum I og II um allt land og hér má fá allar nánari upplýsingar og skrá sig til leiks.
Tölvunám – heima í stofu!
Eins og áður býður Starfsmennt upp á fjölda fjarkenndra tölvunámskeiða sem henta öllum enda veitir kennari leiðsögn í þjónustusíma hvenær sem þörf er á. Fjarnámið hentar mörgum vel þar sem hægt er að vinna heima í stofu á þeim hraða sem hverju og einum hentar best. Hvernig væri að bæta við þig nýrri tölvufærni og koma sjálfri þér á óvart!
Námskeið í Publisher, Google og myndvinnslu hefjast 25. mars.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um tölvunámskeiðin og skrá þig til leiks.
Náms- og starfsráðgjöf sjálfsögð þjónusta
Hluti af þjónustu Starfsmenntar er að bjóða upp á náms- og starfsráðgjöf fyrir alla aðildarfélaga. Markmiðið er að styðja við símenntunaráætlun einstaklinga og ræða möguleika á frekari starfsþróun. Á þann hátt er hvatt til sjálfsábyrgðar og virkrar þátttöku í eigin hæfni. Ráðgjöfin auðveldar fólki, á öllum aldri og við ólíkar aðstæður, að átta sig á styrkleikum sínum og veikleikum og setja, útfrá því stefnu í námi og starfi. Hafðu samband við skrifstofu ef þú vilt panta viðtal.
