Yfirlit námsleiða og þjónustu
Þeir fiska sem róa
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf nóvember 2011
Þó langt sé liðið á haustið og margir jafnvel farnir að huga að jólum er enn nóg að gerast hjá Starfsmennt. Núna í nóvember fer af stað fjöldi námskeiða, almenn og starfstengd, og hvetjum við alla til að kynna sér það sem er í boði. Hér fyrir neðan má sjá hluta af þeim námskeiðum sem boðið er upp á næstu vikur og svo fer úrval náms á vorönn fljótlega að birtast á vef Starfsmenntar.
Nám í samstarfi við framhaldsskóla
Félagsliðabrú
Í samstarfi við Borgarholtsskóla býður Starfsmennt upp á námsbrú fyrir verðandi félagsliða. Með brúarnáminu er starfsreynsla metin þannig að ljúka þarf 32 einingum. Til þess að vera gjaldgengur í brúarnámið þarf nemandi að hafa náð 22 ára aldri, hafa a.m.k. 3 ára starfsreynslu og hafa lokið starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga, sveitarfélaga eða annarra aðila, s.s. starfsnámi stuðningsfulltrúa. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember. Smelltu hér til að kynna þér námið enn frekar.
Viðbótarnám félagsliða
Starfsmennt hefur nú í samstarfi við Borgarholtsskóla þróað nýtt 36 eininga viðbótarnám fyrir félagsliða. Um er að ræða 11 áfanga sem ætlað er að dýpka grunnþekkingu, efla fagmennsku og kynna nýjar áherslur í starfinu. Þrír áfangar verða kenndir núna á vorönn, Félagssálfræði, Hagnýt siðfræði og Sérhæfð upplýsingatækni. Áhugsömum er bent á að snúa sér beint til kennslustjóra námsins thorkatla@bhs.is eða í síma 535 1700. Einnig veita starfskonur Starfsmenntar allar upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember. Starfsmennt greiðir eininga- og innritunargjöld fyrir félagsmenn aðildarfélaganna. Allar nánari upplýsingar má nálgast hér.
Heilbrigðisritarabrú
Vorið 2012 hefst aftur staðbundið síðdegisnám fyrir verðandi heilbrigðisritara og eru allir mótttökuritarar hjá heilsugæslum og heilbrigðisstofnunum hvattir til að nýta það tækifæri. Kennt verður 3 eftirmiðdaga í viku hjá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Brúin felur í sér mat á starfstengdum námskeiðum og starfsreynslu sem styttir námsbraut heilbrigðisritara úr 80 einingum niður í 33 einingar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Smelltu hér til að kynna þér námið betur og nálgast umsóknareyðublað. Umsóknarfrestur er til 2. desember og er sótt um beint til skólans.
Starfsnám stuðningsfulltrúa
Starfsnám stuðningsfulltrúa, grunn- og framhaldsnám getur opnað þér ýmsar spennandi leiðir til að efla þig í starfi á hinu ört stækkandi sviði félags- og heilbrigðisgreina. Hér er um metnaðarfullt starfsnám að ræða sem eflir fagmennsku starfsfólks sem vinnur á félags- og heilbrigðissviði og opnar fyrir ýmsa möguleika til starfsþróunar eða á frekara námi. Námið er ætlað þeim sem vinna með fötluðum, öldruðum eða sjúkum eða hyggja á störf á þeim vettvangi. Í boði er 160 stunda grunnnám sem hefst 23. jan. og 80 stunda framhaldsnám sem hefst 13. feb. Smelltu hér til að skrá þig.
Síðustu námskeið haustannar
Mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur
Starf hverrar stofnunar stendur og fellur með þeim mannauði sem hún býr yfir. Það er því mikilvægt að stjórnendur séu meðvitaðir um hvernig þeir hlúa að starfsfólki, þjálfa það og hvetja. Meginmarkmið þessa náms er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauð sinnar stofnunar. Áhersla er skipulagningu og stjórnun starfsmannamála ásamt því að ýmis hagnýt verkfæri mannauðsstjórnunar verða kynnt. Námskeiðið verður haldið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, dagana 24., 25., 28. og 29. nóvember. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig á námskeiðið.
Rekspölur 1
Á Rekspeli 1 er lögð áhersla á sjálfstyrkingu, starfsvettvang, réttindi og félagsmál. Á námskeiðinu er verið að kynna fyrir nemendum tengsl einstaklingsins, vinnunnar og samfélagsins. Námið er almenns eðlis, fjölbreytt og víða komið við. Kynntu þér málið á síðu Starfsmenntar.
Tölvunám
Fjarkennd tölvunámskeið eru tilvalin leið fyrir þá sem vilja bæta tölvukunnáttuna, á sínum tíma og hraða. Námskeiðin eru þannig upp byggð að hver og einn vinnu verkefni á þeim hraða sem honum hentar og því er auðvelt að laga námskeiðin að ólíkum aðstæðum, hvort sem fólk hefur mikinn eða lítinn tíma. Hér að neðan getur þú kynnt þér þau námskeið sem hefjast í nóvember. Smelltu á nöfnin til að fá frekari upplýsingar og skrá þig.
1. nóvember – skráning opin út þessa viku!
Myndvinnsla
Fjársjóður Google
Publisher
22. nóvember
Hugarkort
Word - framhald
Allar nánari upplýsingar á vefsíðu Starfsmenntar, www.smennt.is. Allt nám og þjónusta setursins er félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu en oft opið öðrum gegn gjaldi. Þá minnum við á að við erum komin í nýtt húsnæði að Ofanleiti 2, 5. hæð og höfum fengið nýtt símanúmer 550-0060.