Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

 

 

 

 kongull_fordi_04

 

 

 

 

 

 

 

 

 

          madur_vid_bord_detail


Veffréttabréf október 2011

Sí- og endurmenntun er sjálfsagður hluti starfa okkar og starfsframa. Á vinnumarkaði sem tekur stöðugum breytingum, með tækninýjungum og breyttum áherslum, er mikilvægt að leggja áherslu á hverskonar starfstengda menntun til að tryggja stöðu okkar. Síðastliðin tíu ár hefur Fræðslusetrið Starfsmennt mætt starfsmönnum og stjórnendum í þessari vinnu og boðið upp á fjölbreytt úrval námskeiða, bæði þverfagleg og sérsniðin að þörfum hverrar stofnunar.

Á næstu vikum fara að stað ýmis námskeið sem gefa fólki færi á að sérhæfa sig til að geta mætt aukinni ábyrgð og tekist á við flóknari verkefni í starfi. Hér fyrir neðan má sjá hluta af þeim námskeiðum sem boðið er upp á. Smelltu hér til að skoða öll námskeið haustannar hjá Starfsmennt.

Að auki býður Starfsmennt upp á fjölbreytt úrval farandfyrirlestra sem stjórnendur stofnana geta óskað eftir fyrir starfsfólk. Slíkir fyrirlestrar geta nýst vel á starfsdögum og fræðslufundum stofnana, en miðað er við að hver fyrirlestur sé þrjár til fjórar klukkustundir. Á heimasíðu Starfsmenntar má sjá lista yfir alla helstu farandfyrirlestrana en mögulegt er að sérnsíða þá að þörfum og aðstæðum hverrar stofnunar.

Vinnur þú með stjórnendum?


Vilt þú bæta við þekkingu þína og auka skilvirkni? Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum er nám fyrir alla sem starfa náið með stjórnendum og aðra þá sem vilja læra hagnýtar aðferðir á sviði stjórnunar og samskipta á vinnustað. Lögð er áhersla á sveigjanleika, sjálfstæði og skipulagshæfni þátttakenda til að geta tekist á við flókin verkefni sem kalla á yfirgripsmikla sýn á fólk og aðstæður. 

Meðal námsþátta eru skipulag funda, álagsstjórnun, hugkortagerð, upplýsinga- og skjalastjórnun, leiðtogahæfni og drifkraftur í teymisvinnu.

Kennt verður á þriðjudögum og föstudögum, kl.13.00-15.50, frá 25. okt – 2. des, hjá EHÍ.

Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig á námskeiðið.

Símenntun, þróun og breytingar

Símenntun, þróun og breytingar eru eðlilegur hluti allra starfa. Þessari námsleið sem sló rækilega í gegn á síðasta ári er ætlað að koma til móts við þarfir starfsmanna sem koma að þessu ferli. Talsmaður breytinga er þjálfaður til að taka að sér hlutverk þess sem bæði hvetur jafningja til náms og ráðleggur stjórnendum hvernig efla megi mannauð stofnunar. Hann tilheyrir ekki stjórnendateymi heldur er tengiliður milli stjórnunarlaga og vakandi yfir velferð allra starfsmanna.

Ef þú vilt fá tækifæri til að efla leiðtogahæfileika þína, verða öruggari í framkomu og stuðla að breytingum á þínum vinnustað á jákvæðan hátt er Talsmaður breytinga námskeið fyrir þig.

Kennt verður á miðvikudögum kl. 15.00-18.00, 9. nóv. - 21. mars hjá EHÍ.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig á námskeiðið.

Launaskólinn þema II


Launaskólinn hefur verið ein vinsælasta námsleið Starfsmenntar undanfarin misseri og hafa námskeið verið sett upp víða um land. Launaskólinn, eins og nafnið gefur til kynnar, var settur upp til að styrkja launafulltrúa og aðra þá sem koma að starfsmanna og kjaramálum hjá hinu opinbera. Á námskeiðunum er gefin heildarsýn yfir sviðið og helstu ákvæði kjarasamninga og réttindi launþega kynnt.

Náminu er skipt upp í fjögur þemu, sem hvert um sig tekur á afmörkuðu efni um kjaramál. Nú í nóvember verður boðið upp á þema tvö, sem er grunnnámskeið í vinnutíma og afgreiðslu launa. Að því loknu eru tvö valnámskeið í boði fyrir þátttakendur, Starfsfólk skóla – sérstakir launaútreikningar og Vaktavinna, bakvaktir og afbrigðilegur vinnutími.

Námskeiðið verður haldið mánudaginn 7. nóv. kl. 10 -16:40 og þriðjudaginn 8. nóv. kl. 9 - 15:40 hjá Endurmenntun HÍ.

Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar og skrá þig á námskeiðið.

Tölvunám

Fjarkennd tölvunámskeið
eru tilvalin leið fyrir þá sem vilja bæta tölvukunnáttuna, á sínum tíma og hraða. Námskeiðin eru þannig upp byggð að hver og einn vinnu verkefni á þeim hraða sem honum hentar og því er auðvelt að laga námskeiðin að ólíkum aðstæðum, hvort sem fólk hefur mikinn eða lítinn tíma. Tvö tölvunámskeið hefjast núna 11. október:

Excel-framhaldsnámskeið, þar sem farið er í flóknari hluta forritsins og sýnt hvernig það getur unnið fyrir mann og auðveldað verklag. Áhersla er á tengingu við gögn ásamt umfjöllun um helstu formúlur og föll forritsins.

PowerPoint námskeið þar sem miðað er að því að nemandi læri að setja upp áhrifamiklar og skemmtilegar glærusýningar og kynningar. Námskeiðið hentar sérstaklega vel öllum þeim sem þurfa að koma efni á framfæri á lifandi og skemmtilegan hátt.

Allar nánari upplýsingar hjá Starfsmennt og í Námsvísi haustsins. Allt nám og þjónusta setursins er félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu en oft opið öðrum gegn gjaldi. Þá minnum við á að við erum komin í nýtt húsnæði að Ofanleiti 2, 5. hæð og höfum fengið nýtt símanúmer 550-0060.



forsida_closeup