Sendu okkur póstPrentvæn útgáfaEldri fréttabréfMinnka leturstærð Stækka leturstærð

 

 

 

 

 

 

 rcmattmntdenxaq

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

ikon_starfsm_blomap_bl

 

 

 

 


Veffréttabréf september 2011

Um leið og sumri hallar fara námsmenn á öllum aldri á kreik. Ný sjónarhorn eru okkur nauðsynleg og nýtast bæði til frekara náms eða til að auka starfshæfni og möguleika. Nám sem er áhugavert, eflir okkur sem einstaklinga og ef vel tekst til, eykur lífsgæði okkar, jákvæð viðhorf og framtíðarsýn. Og sú virkni og verkgleði smitar út frá sér. Öll viljum við fá tækifæri til að vinna okkar verkefni sem best, hver sem að þau eru, og kunna að nýta okkur þau tæki og tól sem bjóðast.

Nám og ráðgjafaþjónusta Fræðslusetursins Starfsmenntar er eitt úrræði sem opinberir starfsmenn og stjórnendur geta nýtt sér þar sem starfstengt nám er hluti af kjarasamningsbundnum réttindum. Setrið býður upp á fjölbreytt úrval starfstengdra námsleiða í samstarfi við stofnanir eða starfsgreinar en einnig er boðið upp á almenn þverfagleg námskeið sem opin eru öllum. Þá geta stofnanir óskað eftir ráðgjafaþjónustu til að vinna að margskonar mannauðseflingu eða kallað eftir farandfyrirlestum. Öll þjónusta Starfsmenntar er félagsmönnum flestra aðildarfélaga BSRB að kostnaðarlausu en opin öðrum gegn gjaldi.

Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla innan BSRB

Fræðslusetrið Starfsmennt býður öllum félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun og fara viðtölin fram á skrifstofu Starfsmenntar. Hér má sjá hvað náms- og starfsráðgjöf er og hvernig á að panta tíma.  Náms- og starfsráðgjöf er sjálfsögð þjónusta fyrir fólk á öllum aldri til að ákveða næstu skref í lífi og starfi. Hafið samband og pantið tíma í síma 550-0060. 

Starfsnám stuðningsfulltrúa – framhald

Mánudaginn 26. sept. hefst kennsla í framhaldsnámi stuðningsfulltrúa sem er alls 80 stundir. Starfsnám stuðningsfulltrúa er framúrskarandi námsleið fyrir alla sem koma að umönnun fatlaðra, aldraðra og sjúkra. Í náminu er lögð áhersla á að auka faglega vitund, þekkingu og færni þátttakenda. Aðeins þeir sem lokið hafa grunnnámi starfsnáms stuðningsfulltrúa geta skráð sig í framhaldsnámið og enn eru nokkur sæti laus.

Fjarkennt tölvunám fyrir alla

Eins og undanfarin ár býður Starfsmennt upp á fjölbreytt úrval tölvunámskeiða fyrir jafnt byrjendur sem lengra komna. Tvö námskeið er framundan, þ.e. Grunnnámskeið (80 stundir) og Outlook (26 stundir) sem hefjast 20. sept. Á grunnnámskeiðinu er farið yfir öll helstu grunnatriði í tölvunotkun, s.s. viðmót og virkni Windows stýrikerfisins og helstu forrit. Outlook er fjölþætt samskipta- og póstforrit sem margir nota á hverjum degi án þess að fullnýta kosti þess. Það námskeið er frábært fyrir þá sem vilja bæta skipulag og samskipti, auðvelda tímastjórnun og verkefnastýringu. Í október fara svo fleiri námskeið af stað sem sjá má hér.

Verkefnastjórnun- vinnulag sem virkar

Á þessu stutta og hnitmiðaða námskeiði (24 stundir) er fjallað um aðferðafræði verkefnastjórnunar og grunnur lagður að frekari sérhæfingu. Aðferðirnar sem kynntar verða fela í sér að fylgja hugmynd eftir frá því að hún kviknar og þar til hún er orðin að veruleika og tryggja yfirsýn og efndir. Smelltu hér til að fá frekari upplýsingar og skrá þig. Námið er haldið hjá EHÍ.

Starfstengd tungumálakunnátta

Núna í september hefjast stutt námskeið í dönsku og ensku þar sem áhersla er lögð á talmál og orðaforða. Dönskunámskeiðið er haldið í Endurmenntun HÍ og hefst 12. sept. en enskunámskeiðin eru haldin í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar um allt land og hefjast flest næstu daga. Hér má skrá sig í dönskuna og hér má sjá hvar og hvenær enskunámskeiðin eru haldin. Þá setur Starfsmennt einnig upp starfstengd enskunámskeið með stofnana þar sem sérhæfður fagorðaforði er æfður.

Önnur spennandi námskeið- sem vert er að skoða

Búið er að opna fyrir skráningu á fjölda þverfaglegra námskeiða sem varða samskipti, sjálfsþekkingu, stjórnun, skapandi hugsun og þjónustu.  Sjá öll námskeiðin hér.

Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum (52 stundir)

Viltu læra að stýra, skipuleggja og skapa ný sjónarhorn eða verklag? Þessi framsækna námsleið hefst 25. okt. í Reykjavík og er fjarkennt til Akureyrar og Ísafjarðar. Hér má fá nánari upplýsingar.

Talsmaður breytinga (76 stundir)

Viltu efla lærdóm á þínum vinnustað og taka þátt í breytingum? Þetta nám er að norrænni fyrirmynd og hefst hjá EHÍ 9. nóv. Upplýsingar og skráning hér.

Framrás 1 – Ég og starfið ( 36 stundir)

Hér er rætt um mikilvægi góðs sjálfstrausts sem grunn að góðum samskiptum og farið í sjálfsskoðun til að koma auga á ný tækifæri og njóta sín. Kennsla hefst 17. okt. hjá EHÍ.

Rekspölur 1 (60 stundir)

Hér er lögð áhersla á persónulega og samfélagslega þekkingu og um leið lagður grunnur að frekari þáttöku í námi eða félagsstörfum. Kennsla hefst í Reykjavík 11. nóv. og er kennt í 1 viku. Skráning hér.

Nám í mannauðsstjórnun (32 stundir)

Hér er boðið upp á stutt nám í mannauðsstjórnun þar sem sjónum er beint að vinnustaðnum, fólkinu og samskiptum þess. Kennsla hefst í Reykjavík 24. nóv.

Allar nánari upplýsingar hjá Starfsmennt og í nýjum Námsvísi haustsins. Allt nám og þjónusta setursins er félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu en oft opið öðrum gegn gjaldi. Þá minnum við á að við erum komin í nýtt húsnæði að Ofanleiti 2, 5. hæð og höfum fengið nýtt símanúmer 550-0060


rcmattmntfsxknb