Yfirlit námsleiða og þjónustu
Fréttabréf Fræðslusetursins Starfsmenntar
Veffréttabréf til leiðbeinenda og fræðslufulltrúa febrúar 2010
Kennslufræðinámskeið fyrir leiðbeinendur
Árangursrík kennsla (20 kst)
Fræðslusetrið Starfsmennt býður öllum þeim sem hafa leiðbeint eða kennt á námskeiðum setursins upp á stutt nám í kennslufræðum fyrir fullorðna. Um er að ræða 20 kennslustunda nám sem haldið er í Reykjavík. Markmiðið er að styrkja þátttakendur sem leiðbeinendur í námi fyrir fullorðna og skerpa á kennsluaðferðum og hagnýtum ráðum. Starfsmennt hefur fengið Hróbjart Árnason, lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands til að sjá um kennsluna og viljum við hvetja alla sérfræðinga sem komið hafa að námi hjá Starfsmennt til að nýta sér þetta einstaka tækifæri til að verða enn betri fagmenn og nálgast viðfangsefni sín á fjölbreyttan hátt.
Á námskeiðinu er ætlunin að hjálpa leiðbeinendum að auka færni sína í að skipuleggja, meta og halda námskeið fyrir fullorðna. Farið er í hagnýtar aðferðir sem nýtast vel við að hjálpa fullorðnum námsmönnum að læra og lögð áhersla á sérstöðu fullorðinna í námi með vinnu. Sjónarhorn, viðhorf og reynsla fullorðinna námsmanna er sérstök og er árangur í námi þeirra að miklu leyti undir því kominn að leiðbeinandi náms geri sér grein fyrir sérstöðu þeirra og geti fundið efni sínu heppilegt kennsluform. Námskeiðið fer fram með stuttum fyrirlestrum, almennum umræðum, einstaklingsvinnu og hópvinnu ásamt stuðningi og samvinnu á netinu á milli funda.
Námskeiðið hentar öllum þeim sem koma að fræðslu fullorðinna s.s. innan símenntunar en einnig þeim sem kenna af og til á námskeiðum á vinnustað eða standa fyrir jafningjafræðsu. Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn og alla þá sem kennt hafa eða sinnt ráðgjafastörfum fyrir Starfsmennt.
Kennt er í Reykjavík 18. feb., 25. feb., 4. mars og 29. apríl kl. 15-18 og má skrá sig til þátttöku hér.
Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum (52 stundir)
Þetta nám er ætlað samstarfsfólki stjórnenda sem þurfa að búa yfir fjölbreyttri hæfni til að auðvelda framgang verkefna og tryggja efndir. Námið hefst 1. mars í Reykjavík með möguleika á fjarkennslu. Markmið námsins er að kenna hagnýtar stjórnunaraðferðir og leggja áherslu á sveigjanleika, sjálfstæði og skipulagshæfni. Einnig verður veitt þjálfun í samskiptafræðum og leiðtogahæfni.
Námsþættir:
• Skilvirkir fundir og viðburðastjórnun
• Uppsetning og röðun tækja
• Rafræn skipulagning
• Samskipti á vinnustað
• Leiðtogahæfni
• Líkamsbeiting og álagsstjórnun
• Þjónustustjórnun
• Gæðastjórnun
• Viðhorf og virkni í breytingum
• Hugkortagerð og áætlanir
• Upplýsinga-og skjalastjórnun
• Drifkraftur í teymisvinnu
Hægt er að skrá sig hér.
Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar.
Tölvur og tölvunotkun - viltu uppfæra tölvuþekkingu þína?
Tölvur og tölvunotkun eru netnámskeið sem kenna byrjendum og lengra komnum á tölvur og ýmis tölvuforrit. Námskeiðin hafa hlotið frábærar viðtökur og eykst aðsóknin með hverju námskeiði. Námskeiðin fara öll fram í fjarnámi undir öruggri leiðsögn kennara sem veitir aðstoð í gegnum þjónustusíma og tryggir þannig að enginn lendir í tæknilegum erfiðleikum. Nám í gegnum netið er frábær leið fyrir þá sem vilja stjórna náminu sjálfir eða eiga erfitt með að sitja löng námskeið á föstum tímum. Margir titlar hér fyrir neðan henta kennurum og leiðbeinendum til að nýta tæknina til fulls og finna efni sínu þannig sem bestan farveg.
Námskeið vorannar hefjast:
Tölvur-og tölvunotkun-Grunnnámskeið 9. feb.
Tölvur-og tölvunotkun-Outlook 9. feb.
Tölvur-og tölvunotkun-Power-Point 2. mars
Tölvur-og tölvunotkun-Excel-framhald 2. mars
Tölvur-og tölvunotkun-Publisher 23. mars
Tölvur-og tölvunotkun-Myndvinnsla og myndavélar 23. mars
Tölvur og tölvunotkun-Word-framhald 13. apríl
Ath! Opið er fyrir skráningar á Grunnnámskeið og Outlook til 16.feb., þar sem fyrsta vika námskeiðanna er undirbúningsvika.
Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar
Verð fyrir greiðandi þátttakendur er 56.000 á grunnnámskeið en önnur tölvunámskeið kosta 24.000.