Fræðslusetrið Starfsmennt býður ríkisstarfsmönnum upp á starfstengda símenntun og veitir stofnunum heildstæða þjónustu á sviði starfsþróunar. Á vorönn 2010 verður margskonar nám í boði sem hentar bæði atvinnuleitendum og þeim sem hyggja á störf á nýjum vettvangi. Markmið Starfsmenntar er að koma til móts við breytingar á starfsumhverfi og störfum með fræðslu og ráðgjöf en öll þjónusta setursins er félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu. Hér fyrir neðan má sjá fjölbreytta flóru margskonar námskeiða sem styrkja sjálfstraust og efla almenna færni í leik og starfi. Sum námskeiðanna eru styrkt af Vinnumálastofnun sem hluti af vinnumarkaðsúrræðum þeirra er misst hafa vinnuna.
Hér er um að ræða 18 sjálfstæð námskeið sem haldin verða í BSRB húsinu á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10-13 alla vorönnina 2010. Námskeiðin eru ætluð atvinnuleitendum og þeim sem hyggja á störf á nýjum vettvangi eða eru að takast á við breytingar. Markmiðið með náminu er að styrkja stöðu þátttakenda á vinnumarkaði með því að auka sjálfsþekkingu, starfshæfni og námsáhuga. Margt spennandi er í boði og vonandi nýta félagsmenn BSRB sér þetta einstæða tækifæri til að hittast, fræðast og styðja hvert annað. Boðið verður upp á léttan hádegisverð. Skráningar fara fram á vef Starfsmenntar og hér má prenta út yfirlit yfir allt námið og sjá allar námslýsingar.
Starfsnám stuðningsfulltrúa- grunn- og framhaldsnám
Hér er um umfangsmikið samfellt starfsnám að ræða og telur grunnnámið alls 160 stundir og framhaldsnámið 80 stundir. Kennt er á morgnana og hentar námið starfsmönnum sem vinna með fötluðum, öldruðum eða sjúkum, eða hyggja á störf á þessum vettvangi. Sjá kynningu á vorönn 2010. Hér má skrá sig í grunnnámið og framhaldsnámið.

Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja ná tökum á frammistöðukvíða eða auka öryggi sitt í flutningi máls. Hér er hægt að skrá sig á námskeiðið bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Hér er fjallað um mikilvægi heilbrigðs sjálfstrausts sem grunn að góðum samskiptum og vellíðan á vinnustað. Reyndir sálfræðingar fjalla um gildi sjálfsmyndar og sjálfsþekkingar. Hér er hægt að skrá sig í námið.
Megintilgangur námsins er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauðinn á hverjum vinnustað út frá sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana. Áhersla er lögð á skipulagningu og stjórnun starfsmannamála og að gefa yfirsýn yfir fræðasviðið sem og hagnýt verkfæri. Kennt verður í Reykjavík og á Akureyri og fjarkennt þaðan til Egilsstaða, Ísafjarðar, Selfoss og á Siglufjörð.
Markmið með náminu er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að takast á við breiðara starfssvið og flóknari verkefni sem góðir liðsmenn. Miklu skiptir að stjórnendur geti falið starfsfólki að fullvinna verkefni og tryggja góða yfirsýn. Hér er stefnt að því að treysta grunn faglegra og úrræðagóðra starfsmanna með því að veita þeim innsýn í stjórnunarfræði og treysta skipulags- og samstarfshæfni. Námið nýtist einnig þeim sem undirbúa sig fyrir störf á nýjum vettvangi. Hér er hægt skrá sig í námið í Reykjavík og í fjarnám á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum. Hér má sjá auglýsingu um námið sem má prenta út og nota til kynninga á vinnustöðum.
Starfsmennt býður upp á fjarkennt tölvunám til að efla almennt tölvulæsi. Það eina sem til þarf er tölva og nettenging en kennari veitir bæði tækniaðstoð og ráðgjöf í síma. Um sjö námskeið er að ræða sem sjá má hér.
Rekspölur 2 (60 kst)
Markmiðið með námskeiðinu er að styrkja einstaklinginn í lífi og starfi með umfjöllun um sjálfstraust, samskiptahæfni, framkomu og rökvísi. Einnig er fjallað um einstaklinginn í samfélagi nútímans með tilliti til fjölmenningar og fordóma. Þetta er almennt nám sem gefur gott yfirlit yfir marga málaflokka. Hér er hægt að skrá sig í námið.
Verkefnastjórnun (24 stundir)
Hér er kynnt hugmyndafræði verkefnastjórnunar, helstu aðferðir, tæki og tól. Einnig er fjallað um hvernig verkefnastjóri getur virkjað samstarfsfólk sitt til athafna og gildi góðs upplýsingaflæðis. Hér læra þátttakendur að halda utan um þróun hugmyndar frá upphafi til enda án þess að tapa yfirsýn.
Hér er hægt að skrá sig í námið í Reykjavík og fjarkennslu á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og á Selfossi.
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja greiða leið lærdóms og breytinga á vinnustað eða þróa hæfni sína á því sviði. Þátttakendur þurfa að þekkja til mikilvægi símenntunar og hafa sýnt leiðtogafærni við innleiðingu umbóta. Talsmaðurinn fær þjálfun í að greina góðar hugmyndir og koma þeim á framfæri. Þá þarf hann eða hún að búa yfir góðum samskiptahæfileikum, vera lausnamiðaður í hugsun og hafa áhuga á velferð samferðamanna sinna. Hér er hægt að skrá sig í námið. Hér má sjá auglýsingu um námið sem hentar til útprentunar.