Search

07. september 2009

Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum (52 kst) hefst 5. okt.

Markmið með náminu er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að takast á við breiðara starfssvið og flóknari verkefni sem aðstoðarmenn stjórnenda.
Þátttakendur fá innsýn inn í störf og ábyrgð stjórnenda og mikilvægi starfa starfsfólks í stjórnunareiningum, til að fylgja verkefnum eftir. Lögð er áhersla á sveigjanleika, sjálfstæði og skipulagshæfni þátttakenda til að geta tekist á við flókin verkefni sem kalla á yfirgripsmikla færni. Starfsfólk í stjórnunareiningum fær einnig þjálfun í samskiptafræðum til að geta komið fram fyrir hönd stjórnenda og unnið í teymum á vinnustað. Þá eiga þátttakendur að geta tekið á málum er varða starfsemina á markvissan og uppnbygggjandi hátt.

Námið samanstendur af 11 námsþáttum sem eru 52 kst.

Námsþættir

Fundarsköp, skilvirkir fundir og viðburðarstjórnun (4 kst)
Uppsetning og röðun tækja og rafræn skipulagning (4 kst)
Samskipti á vinnustað (4 kst)
Leiðtogahæfni (4 kst)
Líkamsbeiting og álagsstjórnun (4 kst)
Þjónustustjórnun (8 kst)
Gæðastjórnun (4 kst)
Viðhorf og virkni í breytingum (4 kst)
Hugkortagerð (e. mind manager) (4 kst)
Upplýsinga-og skjalastjórnun (8 kst)
Drifkraftur í teymisvinnu (4 kst)

Námið hefst 5. okt. Nánari upplýsingar og skráning hér.

 




Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070