Search

05. október 2009

Viltu bæta eigið sjálfstraust og starfanda

Starfsmennt býður upp á tvö stutt og hnitmiðuð námskeið í október. Annars vegar námskeiðið Starfsandi og samstarfsvilji þar sem fjallað er um hópasetningu og hóphlutverk og hvernig auka megi starfsgleði fólks. Hins vegar námskeiðið Að tjá sig án kvíða sem er ætlað þeim sem vilja ná tökum á frammistöðukvíða eða auka öryggi sitt í flutningi máls.

Starfsandi og samstarfsvilji verður haldið 14. okt. kl. 8.30-16.30 og 21. okt. kl. 8.30-12.30 og er haldið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Gerðuberg 3-5. Umsjón með námskeiðinu hefur Ingrid Kuhlman og Þórhildur Þórhallsdóttir hjá Þekkingarmiðlun.

Að tjá sig án kviða verður haldið 21., 23., 26. og 28. okt kl. 13.30-16 og er haldið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Gerðuberg 3-5. Umsjón með námskeiðinu hefur Margrét Pétursdóttir leikkona.




Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070