Search

20. október 2009

Þjónustustjórnun-Fjarkennt-nýtt

Á þessu stutta námskeiði gefst þátttakendum kostur á að horfa á nokkur myndbönd þar sem fjallað er um góða og slæma þjónustu á skemmtilegan hátt.
Sýnt er á myndrænan hátt hvernig má gera góða þjónustu betri, jafnvel framúrskarandi og hvað ber að varast. Leiðbeint er um samskipti við pirraða og reiða skjólstæðinga. Fjallað er um hvað þjónusta er og mikilvægi hennar fyrir ánægju starfsmanna og skjólstæðinga.

Þetta námskeið er einstaklega hentugt fyrir starfsmenn sem hafa lítinn tíma aflögu en vilja bæta þekkingu sína og auka starfshæfni. Ekki er þörf á að fara af starfsstað til að sækja námskeiðið því þátttakandi getur verið staddur hvar sem er í veröldinni, eingöngu er þörf á tölvu og nettengingu.

Námskeiðið hefst 2. nóv. og lýkur 1. des. Nánari upplýsingar og skráning hér




Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070