PowerPoint er öflugt verkfæri til að útbúa vönduð og eftirtektarverð gögn, s. s. glærur, litskyggnur, námsgögn og skjásýningar. Notandi hefur aðgang að mörg hundruð tilbúnum bakgrunnum og þarf aðeins að bæta við lykil-texta eða myndum til þess að útbúa lifandi og áhrifamikið efni. Bæta má t.d. við hreyfimyndum og hljóðupptökum sem auka áhrif skjásýninga. Námskeiðið hentar sérstakleg vel öllum þeim sem þurfa að flytja mál sitt á skýran og skilmerkilegan hátt og/eða koma efni á framfæri á lifandi og sterkan hátt t.d. með því að setja glærur til kynninga á Netið. Námskeiðið fer allt fram í fjarnámi með aðferðum sem allir ráða við. Nemendur fá í upphafi senda kennslubók og leiðbeiningar en sækja að auki eftir leiðsögn kennslumyndbönd af Internetinu. Nemendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins, Bjartmars Kristinssonar í gegnum þjónustusíma sem er opinn 9-21 virka daga.
Lengd:
Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur í fjarnámi auk þess sem nemendur fá þriggja vikna stuðningstíma eftir að námskeiðinu lýkur. Námið er 26 stundir.
Athugið að í upphafi er 1 vika notuð í innskráningu í Netskólakerfið & undirbúning en kennsla hefst í upphafi næstu viku á eftir.
Verkefnum námskeiðsins er dreift yfir 3 vikur en nemendur ráða á hvaða hraða þau eru leyst því aðgangur er opinn allt skólaárið.
Forkröfur:
Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið námskeiðinu Tölvur og tölvunotkun (grunnnáminu) og/eða hafi góða almenna reynslu í tölvunotkun.
Markmiðslýsing:
Að námskeiði loknu getur nemandinn af öryggi búið til áhrifamiklar og skemmtilegar glærusýningar og kynningar, sem tekið er eftir. Námskeiðið hentar sérstakleg vel öllum þeim sem þurfa að koma efni á framfæri á lifandi og sterkan hátt svo tekið er eftir.
Áhersluatriði:
- Notkun sniðskjala
- Hjálpar-álfurinn og hvernig má nota hann til að flýta glærugerðinni
- Unnið með texta í PowerPoint
- Litir og litabreytingar
- PowerPoint sem kynningartæki
- Litaðri glæru breytt í svart-hvíta
- Bakgrunnur, bakgrunnslitir, stígandi, mynstur í bakgrunni og bakgrunnsáferð
- Gerð lista, taflna, myndrita og skipurita í PowerPoint
- Teikningar, ljósmyndir, hljóð og hreyfimyndir
- Útlína notuð við glærugerð
- Glæruröðun, glærur faldar og stjórnað hvernig þær birtast
- Glærur sýndar með hjálp skjávarpa
- Minnispunktar fyrirlesarans
- Haus- og fótlína glæru
- Grunnglærur (master), gerð þeirra og breyting
- Notkun WordArt til að móta texta skemmtilegan hátt.
- Prentun glærusýninga
- Sjálfvirk glærusýning .
Námskeiðið er rekið í samvinnu við Tölvuskólann NEMANDI og Bjartmar Kristinsson tölvukennara.
Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar
| Verð fyrir greiðandi þátttakendur: |
24.000 ISK.
|
|