arrow
Tímar í boði

11. 10. 2010



arrow
Rekspölur 1

Námsskrá
Stundaskrá 

Markmiðið 
Á námskeiðinu er verið að kynna fyrir nemendum tengsl einstaklingsins, vinnunnar og samfélagsins. Námið er almenns eðlis, fjölbreytt og víða komið við.
Námsleiðin samanstendur af 15 námsþáttum þar sem þrír þeirra eru kenndir á vefnum, en þeir eru: Vafrað, verslað og lært, Námstækni og Stjórnarskrá og lýðræði. Vefnám á ekki að vera nein hindrun því góðar leiðbeiningar verða gefnar í byrjun.  Taka verður alla námsþættina í einu. Námskeiðið er kennt í Reykjavík, en fjarvarpað út á land þar sem áhugi er fyrir hendi og lágmarksþátttaka næst.

Námslýsing
Rekspölur skiptist í námskeið 1 og 2 þó ekki sé gerð krafa um að þátttakendur taki 1 á undan 2. Námskeiðin eru almenn starfsnámskeið sem miðast við að styrkja persónulega hæfni. Á Rekspeli er lögð áhersla á persónulega hæfni, almenna þekkingu og samspil einkalífs og starfs og einstaklingurinn er í miðdepli umræðunnar.

Námsþættir
a) Einstaklingurinn, starfsvettvangur, réttindi, félagsmál og hlutverk sem opinber starfsmaður.
b) Einstaklingurinn í einkalífi og starfi. Þjóðfélagslegt samhengi aðstæðna, kjara og viðhorfa og eiginleikar og sérkenni sérhvers einstaklings.
c) Einstaklingurinn á tölvuöld. Kynnt er hvernig nota má tæknina til að stunda samskipti og afla annarra upplýsinga á netinu.

Á námskeiðinu er lögð rík áhersla á félagsleg samskipti og virka þátttöku þeirra sem námskeiðin sitja.

Lengd
60 kst.

Staður og stund
11. okt. - 18. okt., kennt verður í eina viku frá kl. 8.30-15.50.
Námskeiðið er haldið hjá Framvegis - miðstöð um símenntun, Síðumúla 6, 108 Reykjavík.  

Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar

Verð fyrir greiðandi þátttakendur: 60.000 ISK.



Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070