arrow
Tímar í boði

20. 10. 2010



arrow
Að tjá sig án kvíða

Markmið námskeiðsins

  • Að æfast í að tala skýrt og láta röddina hljóma
  • Að læra aðferðir til að vinna bug á stressi og þekkja sín viðbrögð
  • Að læra að tala við áheyrendur en ekki til þeirra
  • Að öðlast meira öryggi í málflutningi.

Námslýsing
Aukið samstarf og samráð kallar eftir almennari þátttöku fólks í  margvíslegum ákvörðunum. Að geta orðað hugsanir sínar og skoðanir skiptir miklu máli í þannig umhverfi.  Margir óttast að standa upp og tala fyrir framan hóp af fólki.  Þrátt fyrir að vilja tjá sig þá brestur fólk kjark. Þetta námskeið er fyrir þá en einnig fyrir aðra sem vilja bæta framsögn sína og ná betur til áheyrenda. Á námskeiðinu verður farið í undirstöðu góðrar raddbeitingar og framsagnar s.s. öndun, líkamsstöðu og notkun talfæra. Augnsamband verður æft og framsetning mælts máls og farið sérstaklega yfir það hvernig á að takast á við stress og yfirvinna það.

Kennsluaðferðir
Hópvinna en líka mikið unnið með einstaklinga. Æfingar og úrvinnsla þeirra.

Lengd
16 kst.

Staður og stund
20., 22., 25. og 27. okt. kl. 13.30-16 alla dagana í sal G í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Gerðubergi 3 – 5, Reykjavík.

Umsjón
Margrét Pétursdóttir leikkona.

Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar

Verð fyrir greiðandi þátttakendur: 24.000 ISK.



Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070