Námskeiðin eru ætluð öllum félagsmönnum BSRB og eru þeim að kostnaðarlausu.
Námslýsing
Við þurfum öll á sjálfstrausti og sjálfsöryggi að halda til að takast á við áskoranir og breytingar í umhverfinu okkar. Skortur á sjálfstrausti getur hamlað jafnvel færustu einstaklingunum og haldið aftur af þeim. Það hvernig við hugsum um okkur sjálf og tölum við okkur sjálf hefur mikil áhrif á líðan okkar og hegðun. Neikvætt og óraunhæft sjálfsmat getur orðið að vítahring, við hættum að trúa á okkur sjálf og látum í staðinn aðstæður, tilviljun eða hendingu ráða för. Óraunhæfar hugmyndir um eigin getu geta leitt til neikvæðra tilfinninga sem auðveldlega standa í vegi fyrir að við náum árangri. Mikilvægt er að temja sér jákvæðan og uppbyggilegan hugsunarhátt og styrkja sjálfan sig og hvetja áfram. Einstaklingar sem búa yfir sjálfstrausti trúa á sjálfa sig og eigin getu eru líklegri til að ná árangri í lífi og starfi. Þeir treysta sér til að vinna sjálfstætt, eru einbeittir og ákveðnir og koma fram við aðra af öryggi. Þeir þora að hafa óvinsælar skoðanir og læra af eigin mistökum. Þeir þekkja eigin gildi, styrkleika, þarfir og takmarkanir og eru opnir fyrir hreinskilinni endurgjöf á frammistöðu sína.
Á námskeiðinu læra þátttakendur leiðir til að virkja afl jákvæðs sjálfsálits. Þeir fara í gagnrýnið sjálfsmat, tjá sig um það og taka þátt í umræðum um sjálfsstyrk og ákveðni. Farið er í mikilvægi þess að þora að gera mistök, læra af þeim og takast á við gagnrýni. Þátttakendur fá innsýn í eigin hugsanir og hegðun og öðlast meira öryggi í samskiptum. Farið er m.a. í skynjun á eigin getu, tengsl hugarfars og líðan, áhrif hugsana á hegðun og ákveðni í samskiptum.
Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu:
• Skynjun á eigin getu.
• Raunhæft sjálfsmat og sjálfsálit.
• Tengsl hugarfars og líðan.
• Áhrif hugsana á hegðun.
• Ákveðni í samskiptum.
• Að taka gagnrýni.
• Að læra af mistökum.
• Að ná fram því besta hjá sjálfum sér.
• Stjórn á eigin lífi.
Kennsluaðferðir:
• Sjálfsskoðun
• Fyrirlestur
• Umræður
• Æfingar
Lengd
8 kst.
Staður og stund
Þriðjudagur 5. okt. kl. 10-13 og fimmtud. 7. okt. kl. 10 - 13 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89.
Umsjón
Ingrid Kuhlman, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.
Hér má sjá öll námskeið Nýr vettvangur-breytt starf fyrir atvinnuleitendur