arrow
Tímar í boði

12. 10. 2010



arrow
Námskeið fyrir atvinnuleitendur - Hagfræði skynseminnar

Námskeiðin eru ætluð öllum félagsmönnum BSRB og eru þeim að kostnaðarlausu.

Markmið
• Að læra undirstöðuatriði til að skipuleggja fjármál sín með skynsemi í huga.
• Að skilja fjármálatengd hugtök sem varða t.d. lánveitingar, vexti og vísitölur.
• Að kynnast leiðum til sparnaðar og skynsamlegri nýtingu fjármagns.

Námslýsing
Eitt af stærstu verkefnum einstaklinga og fjölskyldna eru fjármálin. Markmið námskeiðsins er að fara almennt yfir fjármál einstaklinga og gefa heilræði um þau. Farið er yfir ýmis atriði varðandi lán, vanskil, skattamál og fleira. Allir geta lent í greiðsluerfiðleikum og eru kynnt almenn úrræði þeim tengdum í samfélaginu. Að lokum er farið yfir þjónustu Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna.

Lengd
4 kst

Staður og stund
Þriðjudagur 12. okt. kl. 10 - 13, í BSRB húsinu, Grettisgötu 89.

Umsjón
Ragnhildur Guðjónsdóttir hagfræðingur hjá Neytendasamtökunum

Hér má sjá öll námskeið Nýr vettvangur-breytt starf fyrir atvinnuleitendur

Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar

Verð fyrir greiðandi þátttakendur: ISK.



Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070