Námskeiðin eru ætluð öllum félagsmönnum BSRB og eru þeim að kostnaðarlausu.
Markmið
• Að þátttakendur geri sér grein fyrir að störf þróast og breytast og að mikilvægt sé að halda við hæfni sinni.
• Að þátttakendur átti sig á tengslum starfa og ævilangrar menntunar.
• Að þátttakendur þekki til hvernig halda megi til haga hæfnislýsingum starfa og hvernig nota megi þau gögn til að ákveða framvindu og framgang í störfum.
• Að þátttakendur þekki til matsleiða á námi og starfsmatskerfa og hvort og hvernig réttindi og nám yfirfærist á milli ólíkra kerfa.
Námslýsing
Fjallað verður um gildi símenntunar og mikilvægi starfsþróunar sem ávinning af símenntun og rætt um vinnustaðinn sem mikilvægan vettvang náms og þjálfunar. Skoðað verður hvernig skóli og atvinnulíf geta unnið betur saman að uppbyggingu framtíðarhæfni á vinnumarkaði. Lögð verður áhersla á að starfsþróun og símenntun sem sjálfsagðan hluta vinnunnar og rétt starfsfólks. Sýnt verður fram á hvernig starfsþróunaraðferðum er bæði ætlað að efla starfsfólk í núverandi störfum og gera þau hæfari til að takast á við breytingar. Rætt verður lykilhæfni náms og starfa og nauðsyn þess að byggja upp hæfni starfsfólks út frá starfsmarkmiðum og stefnu stofnana. Kynntir verða hæfnislýsingar starfa sem byggja m.a. á þekkingu, færni og viðhorfum starfsfólks og rætt um þá þróun sem á sér stað í símati á hæfni starfsfólks. Kynnt verða kerfi þar sem starfsreynsla og raunfærni eru metin að verðleikum
Lengd
6 kst.
Staður og stund
Þriðjud. 9. nóv. kl. 10 - 13.30, í BSRB húsinu, Grettisgötu 89.
Umsjón
Árný Elíasdóttir mannauðsráðgjafi
Hér má sjá öll námskeið Nýr vettvangur-breytt starf fyrir atvinnuleitendur