arrow
Tímar í boði

13. 09. 2010



arrow
Starfsnám stuðningsfulltrúa - framhaldsnám

Stundaskrá fyrir nám í september     
Námsvísir

Eitt námskeið verður í boði á haustönninni:

Námskeiðið hefst 13. september 2010 samkvæmt stundaskrá og er kennt í hverri viku frá kl. 8:30 – 12:00. Umsóknarfrestur er til 3. september 2010.  

Framúrskarandi námskeið fyrir stuðningsfulltrúa. Við leggjum áherslu á styrkingu starfsmanna, faglega vitund, aukna þekkingu og vaxandi hæfni.

Ef þú ert starfandi stuðningsfulltrúi og hefur lokið grunnnáminu þá er þetta námskeið fyrir þig!!

Athygli er vakin á því að greiðandi þátttakendur eiga rétta á stuðningi frá starfsmenntunarsjóðum sinna stéttarfélaga.

Markmiðið með náminu, sem er 80 stundir, er að auka þekkingu og færni þeirra starfsmanna sem starfa í þjónustu við fatlað fólk á Íslandi. Með því er stuðlað að auknum lífsgæðum fatlaðra á sviði líkamlegrar, efnislegrar, félagslegrar og tilfinningalegrar vellíðunar, sem leitt getur af sér virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Með þetta markmið að leiðarljósi er boðið upp á nám sem inniheldur fjölbreytta kennslu og þjálfun á sviði félags-, sálar- og uppeldismála.

Auk annars er lögð áhersla á að:
• auka faglega vitund og skilning þeirra starfsmanna sem starfa við að veita fólki með fötlun þjónustu
• styrkja jákvætt viðmót og viðhorf meðal þeirra starfsmanna sem veita fólki sem býr við fötlun þjónustu
• auka almenna og sértæka færni þeirra starfsmanna sem veita fólki sem býr við fötlun þjónustu.

Kennarar
Fjölmargir sérfræðingar á starfssviði stuðningsfulltrúa.

Umsjónaraðili: Framvegis - miðstöð um símenntun í Reykjavík. Kennslan fer fram í húsnæði Framvegis, Skeifunni 11, 3.hæð, 108 Reykjavík.

Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar

Verð fyrir greiðandi þátttakendur: 52.000 ISK.



Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89 · 105 Reykjavík · Sími 525 8395 · smennt@smennt.is · kt. 441001-2070