Stundaskrá
Námsvísir
Námið hefst mánudaginn 15. mars - 20. maí 2010 kl. 12.30-16:00 og er kennt í hverri viku á þeim tíma. Umsóknarfrestur er til 8. mars.
Framúrskarandi námskeið fyrir stuðningsfulltrúa. Við leggjum áherslu á styrkingu starfsmanna, faglega vitund, aukna þekkingu og vaxandi hæfni.
Ef þú ert starfandi stuðningsfulltrúi og býrð á Vestfjörðum þá er þetta námskeið fyrir þig!!
Athygli er vakin á því að greiðandi þátttakendur eiga rétta á stuðningi frá starfsmenntunarsjóðum sinna stéttarfélaga.
Markmiðið með náminu, sem er 160 tímar, er að auka þekkingu og færni þeirra starfsmanna sem starfa í þjónustu við fatlað fólk á Íslandi. Með því er stuðlað að auknum lífsgæðum fatlaðra á sviði líkamlegrar, efnislegrar, félagslegrar og tilfinningalegrar vellíðunar, sem leitt getur af sér virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Með þetta markmið að leiðarljósi er boðið upp á nám sem inniheldur fjölbreytta kennslu og þjálfun á sviði félags-, sálar- og uppeldismála.
Auk annars er lögð áhersla á að;
• auka faglega vitund og skilning þeirra starfsmanna sem starfa við að veita fólki með fötlun þjónustu
• styrkja jákvætt viðmót og viðhorf meðal þeirra starfsmanna sem veita fólki sem býr við fötlun þjónustu
• auka almenna og sértæka færni þeirra starfsmanna sem veita fólki sem býr við fötlun þjónustu.
Umsjónaraðili: Framvegis - miðstöð um símenntun í Reykjavík. Kennslan fer fram í húsnæði Fræðslumiðstöðvar Vestfjarðar, Suðurgötu 12. Sími 456-5025