Á almennum námskeiðum Starfsmenntar er leitast við að styrkja starfshæfni fólks þverfaglega. Hér er um að ræða almenna hæfnisþætti eins og bætt samskipti á vinnustað, margskonar stjórnun s.s mannauðsstjórnun, verkefnastjórnun, upplýsinga-, þjónustu- og þekkingarstjórnun ásamt skrifstofustjórn, tungumálakunnáttu og tjáningu. Einnig má finna hér nýtt nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum og talsmenn lærdóms á vinnustöðum. Þá má sjá hér almennt starfsnám s.s. Framrás og Rekspöl og 18 námskeið fyrir atvinnuleitendur sem kennd verða á þriðjudögum og fimmtudögum alla vorönnina í BSRB húsinu.
Starfstengdar námsleiðir eru sérsniðnar að þörfum starfshópa og stofnana og unnar í breiðu samstarfi innan stýrihópa. Hér má nefna heildstæð símenntunarkerfi eins og Járnsíða-námsleið fyrir starfsmenn sýslumannsembætta, Vísdóm fyrir héraðsdómstóla, Vinnumálaskólann, Á vettvangi fyrir læknaritara, Hæfni fyrir heilbrigðisritara og Heilsu. Einnig er hér að finna brúarnám innan framhaldsskóla og starfsnám stuðningsfulltrúa. Þá má finna hér Launaskólann fyrir launafulltrúa hjá ríki og bæ.
Fjarkennd tölvunámskeið Starfsmenntar hafa notið mikilla vinsælda. Þau eru bæði ætluð byrjendum og lengra komnum. Markmiðið er að efla tölvuþekkingu nemenda með kennslu á algengustu forritunum og gera þá sjálfstæða í heimi tölvutækninnar. Námskeiðin fara öll fram í fjarnámi undir öruggri leiðsögn kennara sem veitir aðstoð í gegnum þjónustusíma alla virka daga.