Á almennum námskeiðum Starfsmenntar er leitast við að styrkja hæfni fólks bæði í daglegu lífi og starfi. Að undanförnu hafa hæfnisþættir sem áður töldust sérhæfðir og ekki á færi allra, breyst yfir í það að verða almennir og sjálfsagðir hjá öllum starfsmönnum. Hér er t.d. átt við tölvufærni, tungumálakunnáttu og aukna stjórnunarábyrgð. Starfsmennt leitast við að koma til móts við þessar breyttu þarfir og taka námskeiðin því á fjölbreyttum þáttum eins og bættri þjónustulund, sjálfsmati og samskiptum, vellíðan í vinnu, notkun starfsmannasamtala, siðfræði og ýmsu fleiru. Þá er boðið upp á námskeið í verkefnastjórnun sem gefið hefur mörgum betri innsýn í þær stjórnunaraðferðir. Einnig má finna hér nýtt nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum og talsmenn breytinga á vinnustöðum.
Hér að neðan er að finna það úrval almennra námskeiða sem Fræðslusetrið Starfsmennt hefur upp á að bjóða. Námskeið eru þverfagleg og því opin öllum þvert á stofnanir og starfshópa. Með því móti myndast oft skemmtileg tengsl, frjóar umræður og ný sjónarhorn. Smelltu á það námskeið sem vekur áhuga þinn og fáðu nánari upplýsingar um efnisþætti þess. Öll skráning á námskeið Starfsmenntar fer fram á netinu og að námi loknu má nálgast þar þátttökuskjöl og þjónustukönnun. Starfsfólk Starfsmenntar veitir fúslega allar frekari upplýsingar og aðstoð við skráningu. Hér fyrir neðan eru almenn námskeið vorið 2012 sett upp í stafrófsröð.