Námskeið framundan



Á fjölunum - námsleið fyrir leiksviðstækna

Fræðslusetrið Starfsmennt tekur þátt í margskonar þróunarverkefnum þar sem komið er til móts við þarfir einstakra starfshópa fyrir fræðslu og þjálfun. Hér er oftast um að ræða stofnanahópa þar sem menntunarkröfur eru fjölbreyttar og starfsvið starfsmanna er vítt. Námsleiðin Á fjölunum er ætlað breiðum hópi tæknimanna sem starfa innan leikhúsa við hljóð, mynd, ljós og leikmuni og er hér um heildstætt nám að ræða sem byggir á ítarlegri þarfagreiningu.

Markmið námsins er að styrkja sviðsmenn og starfsmenn leikmunadeilda í starfi og faglegum útfærslum og auka hæfni þeirra til að takast á við ný og krefjandi verkefni. Námið samanstendur af 68 stundum og verða tvö námskeið verða í boði á haustönn sem taka þarf saman.

Sjá námsskrá Á fjölunum.

Hér fyrir neðan birtast þau námskeið sem í boði eru hverju sinni



 



Fræðslusetrið Starfsmennt
Ofanleiti 2 · 103 Reykjavík · Sími 550 0060· smennt@smennt.is · kt. 441001-2070