Námskeið framundan



Námsbrú fyrir verðandi heilbrigðisritara

Nám fyrir verðandi heilbrigðisritara.  

Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á námsbrú fyrir verðandi heilbrigðisritara í samvinnu við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Brúin felur í sér mat á fyrra námi /símenntun og starfsreynslu sem styttir námsbraut heilbrigðisritara úr 80 einingum niður í 33 einingar á grundvelli eftirfarandi skilyrða:

-Að nemandi hafi náð 22 ára aldri.
-Að nemandi hafi að minnsta kosti fjögurra ára starfsreynslu sem heilbrigðisritari (eða hjúkrunar- og móttökuritari).
-Að nemandi hafi lokið 160 tíma sérhæfðri fræðslu sem nýtist í starfi eða starfstengdum námskeiðum stéttarfélaga eða stofnunar (t.d. starfsnámi stuðningsfulltrúa, grunn- og framhaldsnámskeiði).

Að námi loknu öðlast þátttakendur fullgildi réttindi sem heilbrigðisritarar.

Fyrirkomulag námsins er að kennt er samkvæmt skilgreiningu náms í öldungardeildum, þ.e. helmingi færri kennslustundir eru á bak við námseiningu en í dagskóla.
Kennt er síðdegis, á tímabilinu 15.20-18.20 frá mánudegi til miðvikudags.
Lágmarksfjöldi nemenda þarf að vera 20.

Náminu er skipt upp í 3 hluta og eru teknar að meðaltali 11 einingar á önn þannig að náminu lýkur á einu og hálfu ári með eðlilegri framvindu.

Brúin verður í boði í dagskóla og síðdegis ef þátttaka næst ásamt fjarnámi fyrir þá sem uppfylla skilyrðin.
Umsóknarfrestur fyir námið á haustönn 2012 er 8. júní og hvetjum við ykkur til að kynna námið fyrir öðrum og hrífa þá með ykkur en námið hefst 27. ágúst.

Hér má nálgast umsóknareyðublað.
Umsóknir sendist til Fjölbrautaskólans við Ármúla, Ármúla 12, 108 Reykjavík.
Ath! Vinsamlega látið fylgiskjöl fylgja umsókn ásamt upplýsingum um stéttarfélagsaðild.

Nánari upplýsingar veitir Kristrún Sigurðardóttir starfandi kennslustjóri, netfang run@fa.is og starfskonur Fræðslusetursins Starfsmenntar í síma 550-0060

Fræðslusetrið Starfsmennt greiðir umræddan kostnað vegna námsins fyrir félagsmenn SFR sem teknir verða inn í námið.

Hér má sjá námsskrá fyrir heilbrigðisritarabraut.





Fræðslusetrið Starfsmennt
Ofanleiti 2 · 103 Reykjavík · Sími 550 0060· smennt@smennt.is · kt. 441001-2070