Launaskólinn er nýtt nám fyrir launafulltrúa og þá sem koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá ríki og bæ. Námskeiðin henta einnig stjórnendum sem vilja efla þekkingu sína á þessu sviði. Námsleiðin var hönnuð í samstarfi fjármálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga á vettvangi Fræðslusetursins Starfsmenntar. Starf launafulltrúans krefst mikillar þekkingar á inntaki kjarasamninga og yfirgripsmiklu regluverki opinbera vinnumarkaðarins. Launafulltrúar gegna ábyrgðarmiklu starfi þar sem lítið má út af bregða vegna hagsmuna launþega um að afgreiðsla launa og ávinnsla réttinda sé framkvæmd á réttan hátt. Því er mikilvægt að þeir sem vinna við launavinnslu og á starfsmannadeildum þekki sem best umhverfið og lagarammann og hafi vettvang til að deila vinnulagi og ræða verkferla og túlkanir ákvæða. Nám fyrir launafulltrúa svarar einnig aðkallandi fræðsluþörf fyrir grunnmenntun á þessu sviði þar sem sérfræðiþekking þátttakenda er efld en hingað til hefur þjálfunin að mestu farið fram á vinnustað.
Námsleiðin er alls 84 stundir og er því skipt upp í 4 þemu sem kennd verða veturinn 2012 - 2013. Hvert þema samanstendur af nokkrum sjálfstæðum námskeiðum og þurfa þátttakendur að skrá sig á vef Starfsmenntar í hvert námskeið sem þeir hyggjast taka. Þannig er komið til móts við mismunandi fræðsluþarfir reyndra starfsmanna en þátttakendur eru þó hvattir til að taka öll námskeiðin. Kennt er í Reykjavík hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, í BSRB húsinu, Grettisgötu 89 og hjá símenntunarmiðstöðum víða um land.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Skráning á námskeið vorannar Launaskólans sjá neðst á síðu.
Hér má sjá námskrá Launaskólans.