Starfsmennt býður upp á fjöbreytt úrval tölvunámskeiða, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.
Annars vegar er um að ræða námskeið í samvinnu við tölvuskólann Nemandi.is sem býður netnámskeið þar sem byrjendum og lengra komnum er kennt á tölvur og ýmis hagnýt forrit. Námskeiðin hafa hlotið frábærar viðtökur. Öll kennsla fer fram í fjarnámi, með aðferðum sem allir ráða við, undir öruggri leiðsögn og með stuðningi kennara, Bjartmars Kristinssonar. Stuðningur er bæði með netpósti og gegnum þjónustusíma nemenda sem er opinn 10-20 alla virka daga. Nám í gegnum netið er frábær leið fyrir þá sem vilja stjórna náminu sjálfir og er að auki kjörin leið fyrir þá sem ekki geta sótt námskeið í staðnámi og hentar að geta stundað nám að heiman eða af vinnustað.
Hins vegar eru það ný námskeið sem í samvinnu við Tölvunám.is. þar sem b oðið eru upp á ítarlegt yfirlit aðgerða sem byggir á stuttum innslögum sem þátttakendur geta nýtt sér samhliða tölvuvinnslu í eigin starfi. Um er að ræða svokallað athafnanám (learning by doing) þar sem nám á sér stað samhliða framkvæmd og reynslu. Sú nálgun er talin festa nám enn betur í sessi.
Smelltu á námskeiðsheitin hér að neðan til að fá nánari upplýsingar og skrá þig til þátttöku.
|
Hvernig virkar fjarnám? (Smella til að opna skjal)
|
* Námskeið sem voru uppfærð haustið 2010 (m.a. fyrir Office 2010) eru stjörnumerkt.
Þeir sem hafa skráð sig en geta ekki nýtt sér námskeiðin eru beðnir að hafa samband við Starfsmennt, smennt@smennt.is eða 550-0060, áður en námskeið hefst.
Ef þú hefur spurningar í sambandi við efni eða framkvæmd tölvunámskeiða er þér velkomið að hafa samband við kennara námskeiðsins, Bjartmar Þór Kristinsson í síma 5334004.
| Nafn námskeiðs | Staðsetning |
|---|---|
- | |
| Tölvunám.is - Ársaðangur að vefnámskeiðum | Allt landið |
| Tölvur og tölvunotkun - Excel framhaldsnámskeið | Allt landið |
| Tölvur og tölvunotkun - Fjársjóður Google-NÝTT | Allt landið |
| Tölvur og tölvunotkun - Grunnnám | Allt landið |
| Tölvur og tölvunotkun - Hugarkort-NÝTT | Allt landið |
| Tölvur og tölvunotkun - Myndvinnsla og myndavélar | Allt landið |
| Tölvur og tölvunotkun - Outlook | Allt landið |
| Tölvur og tölvunotkun - PowerPoint | Allt landið |
| Tölvur og tölvunotkun - Publisher | Allt landið |
| Tölvur og tölvunotkun - Word framhaldsnámskeið | Allt landið |