Fræðslusetrið Starfsmennt veitir ríkisstofnunum fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að efla endur- og símenntun starfsmanna ásamt því að greiða leið lærdóms á vinnustað. Markmiðið með þjónustunni er að auka hæfni starfsmanna og stjórnenda til að þróa áfram símenntun og vinnutengda þjálfun. Þjónustan er frí fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar og ef stofnanir hafa hug á að leita eftir henni er haft beint samband við skrifstofu setursins.
Starfsmennt býður samstarfsstofnunum sínum eftirtalda þjónustu: ráðgjafa að láni, farandfyrirlestra, náms- og starfsráðgjöf, fræðsluhönnun fyrir starfshópa og styrki til símenntunar.
Sjá auglýsingu um þjónustu við stofnanir hér
Ráðgjafi að láni
Verkefnið Ráðgjafi að láni hefur nú staðið stofnunum til boða í nokkur ár og hafa hátt á sjöunda tug þeirra kallað eftir ráðgjafa. Er það til marks um gæði ráðgjafarinnar að algengt er að óskað sé eftir framhaldsvinnu ráðgjafans til að leggja enn betri grunn að markvissri mannauðsstjórnun. Helstu viðfangsefni ráðgjafanna sem Starfsmennt semur við, eru margskonar vinnustaðargreiningar, greiningar á fræðsluþörf, námslýsingar, hæfnislýsingar og aðstoð við gerð starfsmanna-, jafnréttis- og heilsustefnu. Þá hefur ráðgjafinn einnig aðstoðað við innleiðingu starfsmannasamtala. Verkefni ráðgjafans eru öll á sviði mannauðseflingar og kostar Starfsmennt vinnuna að því gefnu að hún nýtist félagsmönnum aðildarfélaganna. Í ljósi ástandsins í dag þar sem margir ríkisstarfsmenn starfa undir miklu álagi hefur þjónustan verið aðlöguð meir í átt að handleiðslu og stuðningi við starfsfólk til að takast á við erfið mál og aukið álag í starfi. Stjórnendur geta óskað eftir láni á ráðgjafa á skrifstofu Starfsmenntar.
Hér má sjá kynningarrit um Ráðgjafa að láni. - en starfsmenn Starfsmenntar veita allar nánari upplýsingar um verkefnið.
Farandfyrirlestrar
Starfsmennt býður upp á fjölbreytt úrval farandfyrirlestra þar sem ríkisstofnanir geta valið áhugavert viðfangsefni á tíma sem þeim hentar best. Farandfyrirlestrarnir eru oftast smærri í sniðum en námskeið og geta nýst vel á starfsdögum og fræðslufundum stofnana. Lágmarkslengd er 2 kennslustundir. Markmiðið með farandfyrirlestrunum er að efla símenntun og starfsþróun ríkisstarfsmanna með því að gefa þeim kost á utanaðkomandi sérfræðingum til að fjalla um það sem efst á baugi hverju sinni á vinnustaðnum. Ríkisstofnanir geta kallað eftir þessari þjónustu að því gefnu að félagsmenn Starfsmenntar njóti fræðslunnar og að hún sé liður í hæfnisuppbyggingu þeirra.
Fyrirlestrarnir eru sérsniðnir og í nánum tengslum við vinnuumhverfi og áherslur í starfsmannamálum. Fræðslan getur nýst starfsfólki og stjórnendum á margan hátt. Hún getur verið þeim hvatning til að breyta og bæta, vakið upp spurningar eða skapað umræður og ný sjónarhorn. Með farandfyrirlestrunum vill Starfsmennt ýta undir þátttöku, samræðu og samstarf starfsfólks og stjórnenda um símenntun, starfsþróun og eflingu mannauðs.
Að leysa ágreining
Að stýra jafningjum
Að takast á við erfiða viðskiptavini
Að tjá sig án kvíða
Áhugasvið og starfsánægja
Breytingastjórnun
Efling liðsheildar og vinna í teymum
Efling sjálfstrausts og áhrif sjálfsmyndar á gæði samskipta
Gerð færnimöppu
Hvað er markviss mannauðsstjórnun?
Lærdómsfyrirtækið-Miðlun fræðslu á vinnustað
Mótun starfsmannastefnu/heilsustefnu/jafnréttisstefnu
Móttaka nýliða
Námsnálgun fullorðinna
Námstækni og vinnuvenjur
Ótilhlýðileg háttsemi á vinnustað
Samþætting starfs og einkalífs
Sáttumleitan og samningatækni
Starfsmannasamtöl fyrir stjórnendur
Starfsmannasamtöl fyrir starfsmenn
Stjórnun í erfiðu árferði
Streita, álag og erfið mál
Tímastjórnun
Um vinnustaðarmenningu
Vellíðan í vinnunni
Viðtalstækni
Vinnugildi og siðfræði starfs
Vinnustaðurinn í erfiðum breytingum
Vinnuumhverfi-heilsa-lífstíll
Styrkir til símenntunar
Starfsmennt veitir styrki og aðstoðar stofnanir við umsóknir til að efla símenntun og starfsþróun.
Starfsmenn Starfsmenntar veita allar nánari upplýsingar um þá þjónustu sem hér er kynnt og eru almennir starfsmenn jafnt sem stjórnendur hvattir til að hafa samband.
Skráning í nám og námskeið á vegum Starfsmenntar er á vefnum. Við skráningu fær hver einstaklingur aðgang að heimasvæði með upplýsingum allt nám sem hann hefur tekið á vegum setursins og þátttökuskjölum til útprentunar. Á heimasvæðinu eru nemendur einnig hvattir til að gefa sitt álit á þjónustunni í stuttri könnun þegar skjöl eru prentuð út. Á þennan hátt er tryggt að rödd notenda komist til skila.