Gerðu ráð fyrir breytingum - Vefnám
Örar breytingar eru hluti af nútíma vinnuumhverfi og skiptir miklu máli að geta tekist á við þær. Námskeiðið er ætlað þeim sem standa frammi fyrir breytingum, eru í breytingaferli eða eru að takast á við eftirmála breytinga. Unnið er með þætti eins og viðmót og eigin túlkun. Tækifæri geta falist í breytingum og getur jákvætt viðhorf gagnvart þeim falið í sér nýja og spennandi möguleika.
Námskeiðið verður í boði í fjarnámi í gegnum fjarfundakerfið Zoom sem margir þekkja í dag. Kerfið er einfalt í notkun en þátttakendur fá sendan hlekk í fundarboði sem þeir virkja þegar námskeiðið hefst. Nauðsynlegt er að hafa góða nettengingu, myndavél (nóg að hún sé innbyggð í tölvunni) og hljóðnema. Í Zoom fjarfundakerfinu sjá þátttakendur það sem fram fer á skjánum og geta einnig séð kennara og aðra þátttakendur, tekið þátt í umræðum og spjalli.
Hæfniviðmið
Að skilja og þekkja ferli breytinga.
Að þekkja aðferðir og leiðir til að takast á við breytingar.
Að geta valið og hagnýtt þau verkfæri sem kynnt eru til að takast á við breytingar.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og verkefniHelstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 17. september 2020 frá kl. 09:00 - 12:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónSigríður Hulda Jónsdóttir sérfræðingur og eigandi SHJ ráðgjafar
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- Verð15.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er opið öllum en ókeypis fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar.
- Gott að vitaSkráningu lýkur miðvikudaginn 17. september kl. 16:00
- MatÞátttaka og virkni á námskeiðinu
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
17.09.2020 | Að takast á við breytingar | Sigríður Hulda Jónsdóttir |