Þrautseigja í lífi og starfi - Vefnám
Örar breytingar eru hluti af nútíma vinnuumhverfi og að geta aðlagast breytingum og tileinkað sér þrautseigju er talinn vera einn af lykilfærniþáttum í atvinnulífinu. Hugtakið þrautseigja er notað til að skilgreina þá hæfni sem einstaklingur beitir þegar hann mætir mótlæti í lífinu. Þrautseigja einkennist af styrk, staðfestu og úthaldi til að takast á við áskoranir og krefjandi breytinga Fjallað verður um hvernig við túlkum og bregðumst við því sem hendir okkur og hvernig þjálfa má og efla þrautseigju með því að hafa áhrif á þessa þætti.
Námskeiðið verður í boði í fjarnámi í gegnum fjarfundakerfið Zoom sem margir þekkja í dag. Kerfið er einfalt í notkun en þátttakendur fá sendan hlekk í fundarboði sem þeir virkja þegar námskeiðið hefst. Nauðsynlegt er að hafa góða nettengingu, myndavél (nóg að hún sé innbyggð í tölvunni) og hljóðnema. Í Zoom fjarfundakerfinu sjá þátttakendur það sem fram fer á skjánum og geta einnig séð kennara og aðra þátttakendur, tekið þátt í umræðum og spjalli.
Sigríður Hulda hjá www.shjradgjof.is fjallar stuttlega um þrautseigju / seiglu í myndbroti á facebook, en hún kennir námskeiðið Þrautseigja í lífi og starfi.
Hæfniviðmið
Að skilja hvað átt er við þegar talað er um þrautseigju og hvað hugtakið felur í sér.
Að þekkja aðferðir og leiðir til að efla þrautseigju.
Að getað beitt þeim verkfærum sem þeir fá í hendur á námskeiðinu til að efla þrautseigju.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og verkefni.Helstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 24. september 2020 frá kl. 9:00 - 12:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónSigríður Hulda Jónsdóttir SHJ ráðgjöf
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- Verð15.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er opið öllum. Ókeypis fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar.
- Gott að vitaNámskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.
- MatVirkni á námskeiðinu
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
24.09.2020 | Þrautseigja í lífi og starfi | Sigríður Hulda Jónsdóttir |