SSH - Varnarviðbrögð kl. 13:00 - 16:00

Það er mikilvægt að kunna að bregðast rétt við ef erfiðar og óæskilegar aðstæður skapast í starfi. Hér verður farið yfir hvernig þekkja má einkenni hegðunar sem gæti leitt til átaka og ofbeldis, og hvernig bregðast eigi við til þess að verjast án þess að skaða skjólstæðinginn. Þá verður einnig farið yfir hvernig má koma viðkomandi úr árásarham í jafnvægi.  




Hæfniviðmið

Að þátttakandur geti varið sig án þess að valda skjólstæðingi skaða ef til árásar kemur.

Að þátttakendur þekki einkenni hegðunar sem getur leitt til árása og ofbeldis.

Að þátttakendur geti stýrt skjólstæðingum í árásarham aftur í jafnvægi.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fimmtudagur 9. desember kl. 13.00 - 16.00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Felix Högnason þroskaþjálfi og atferlisfræðingur.
  • Staðsetning
    BSRB, Grettisgötu 89, Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Nám ætlað starfsmönnum sem starfa að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnes.
  • Gott að vita

    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi).

    Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélögin greiða námskeiðsgjald fyrir aðra.

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
09.12.2021Varnarviðbrögð13:0016:00Felix Högnason þroskaþjálfi og atferlisfræðingur