Tollstjóri - Árangursrík samskipti

Á námskeiðinu verður farið í uppbyggileg og árangursrík samskipti á vinnustað og fjallað um hugtök því tengt eins og traust, heiðarleika, ábyrgð, virðingu, hreinskilni, stuðning og skuldbindingu. Hugað verður að því sem einkennir vinnustaði og hvers konar erfiðleikar í samskiptum geti komið upp. Hvernig hægt er að vinna með ágreining á uppbyggilegan hátt og mikilvægi þess að geta unnið úr þeim málum sem upp koma á vinnustað. 
Farið verður í lykilatriði við innleiðingu breytinga á vinnustað og algeng viðbrögð fólks við breytingum, forsendur breytinga og tengsl þeirra við stefnu, skipulag, stjórnun, starfsfólk og vinnustaðarmenningu. Fjallað verður um hvaða þættir liggja til grundvallar mismunandi vilja til breytinga. Þátttakendur skoða og skilgreina breytingar í eigin vinnuumhverfi.

Hæfniviðmið

Að þekkja eðli samskipta á vinnustað og hvað einkennir eigin vinnustaðamenningu.

Að þekkja leiðir til að efla samheldni og liðsheild.

Að auka þekkingu sína á eðli breytinga.

Að þekkja helstu viðbrögð og hindranir við innleiðingu breytinga á vinnustað.

Að Þekkja leiðir til að takast á við breytingar í starfi.

Fyrirkomulag

Fyrirlestrar, umræður og verkefnavinna.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    6., 8., 13., 15. og 20. október 2015, frá kl. 10:10 - 12:00.
  • Lengd
    10 klst.
  • Umsjón
    Sigríður Hulda Jónsdóttir, MA.
  • Staðsetning
    Tryggvagata 19, 101 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsmenn á Innheimtusviði hjá Tollstjóra.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins fyrir starfsmenn Tollstjóra.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Þátttaka í tímum og virkni í umræðum. Hver þátttakandi skrifar sínar eigin siðareglur í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsfólk.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
06.10.2015Árangursrík samskipti10:1012:00Sigríður Hulda Jónsdóttir
08.10.2015Árangursrík samskipti.10:1012:00Sigríður Hulda Jónsdóttir
13.10.2015Árangursrík samskipti.10:1012:00Sigríður Hulda Jónsdóttir
09.11.2015Árangursrík samskipti.10:1012:00Sigríður Hulda Jónsdóttir
16.11.2015Árangursrík samskipti.10:1012:00Sigríður Hulda Jónsdóttir