Forystufræðsla - Örugg tjáning - Að koma fram af öryggi-í fjarfundi
Ath: Námskeiðið er einungis í boði í fjarfundi (fjarkennsla).
Um er að ræða vinnustofu með fyrirlestrum, hópverkefnum og umræðum. Fjallað verður um hagnýt ráð og aðferðir til að takast á við sviðsskrekk, efla samskiptafærni og koma fram af öryggi. Þetta er tilvalið fyrir þá sem þurfa starfs eða stöðu sinna vegna að koma fram og halda ræður eða kynningar.
Á námskeiðinu verður farið í:
Undirbúning kynninga/ræður
Að takast á við sviðsskrekk
Tækni við góða kynningarræðu
Líkamsstaða og ímyndasköpun
Hvað virkar og hvað virkar ekki í ræðupúlti
Leiðbeinandi er Sirrý Arnardóttir stjórnendaþjálfari, en hún á að baki 30 ára farsælan feril í fjömiðlum, hefur skrifað bækur um samskipti og tjáningu og kennir við Háskólann á Bifröst.
Verð kr.17.000. Stéttarfélögin greiða námskeiðsgjöldin fyrir félagsmenn sína.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og verkefni.Helstu upplýsingar
- TímiMiðvikudagur 11. nóvember 2020 kl. 9:15-12:15.
- Lengd3 klst.
- UmsjónSigríður Arnardóttir
- StaðsetningNámskeiðið í fjarfundi
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað formönnum, stjórnarmeðlimum og starfsfólki stéttarfélaga.
- Gott að vitaNámskeiðið er ætlað formönnum, stjórnarmeðlimum og starfsfólki stéttarfélaga.
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
11.11.2020 | Örugg tjáning - Að koma fram af öryggi | Sigríður Arnardóttir |