Trúnaðarmenn Sameykis - Langar þig til að skapa jákvæða og skapandi vinnustaðamenningu? - Vefnám kl. 9:00-12:00

ATH Námskeiðið er á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. Örfá sæti í boði.

Á þessu stutta námskeiði verður rætt um nokkra lykilþætti árangursríkrar þjónandi leiðtogastjórnunar og skapandi vinnustaðamenningu. Þátttakendur fá tækifæri til að leggja fram spurningar og taka þátt í umræðum.
 
Vinnumarkaðsrannsóknir benda til þess að þrátt fyrir aukna sjálfvirkni þá er enn brýnna að stjórnendur og starfsfólk hafi færni á sviði mannlegra þátta til að halda velli í samkeppnisumhverfi samtímans. 
Þeirra á meðal eru eiginleikar eins og samskipti, frumkvæði, nýsköpun, þekkingaröflun- og miðlun, uppbyggilegt gagnrýnið hugarfar, samvinna og samningatækni. Sérstaklega er bent á að vinnustaðamenning þurfi að tryggja þætti sem stuðla að góðri heilsu, minnka líkur á kulnun og gæta þess að orka starfsfólks nýtist vel í skilgreind forgangsverkefni.

Það á að vera tilhlökkun að mæta til vinnu þar sem við vitum að við getum gert betur í dag en í gær.

Helstu efnisþættir:

  • Hvað hæfni þurfa leiðtogar að styrkja sérstaklega?
  • Hvað þarf ég/við að gera til að byggja upp liðsheild leiðtoga og sigurvegara?
  • Hvernig hugarfar og menning skilar árangri til framtíðar?
  • Hvar eru tækifærin?
  • Hvað get ég og starfsmannahópurinn sem ég tilheyri gert til að njóta meiri gleði og árangurs?
  • Af hverju getur hugarfar þjónandi leiðtogastjórnunar minnkað líkur á langtíma veikindum og kulnun?

Markmið að trúnaðarmaður:

  • Fái betri skilning og þekkingu til að skapa og viðhalda jákvæðum starfsanda,
  • Öðlist verkfæri til að efla jákvæðni, samkennd og samvinnu,
  • Skilji betur leiðarljósið: „Ég ætla að gera betur í dag en í gær.“
  • Að þekkja grunnþætti að samkeppnishæfni til framtíðar.
  • Að þekkja nokkra af áhættuþáttum kvíða og kulnunar á vinnustað.

Fyrirkomulag

Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Þriðjudagur 5. október kl. 09:00 - 12:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Þorvaldur Ingi Jónsson, viðskiptafræðingur með meistarapróf í stjórnun og stefnumótun og Qigong kennari.
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir stjórnendur og starfsmenn sem vilja auka þekkingu sína á þjónandi leiðtogastjórnun og stuðla betri samskiptum, auka starfsgleði, árangur og styrk sinna teyma.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka.
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir
    solborg(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
05.10.2021VinnustaðamenningÞorvaldur Ingi Jónsson