Launaskólinn er námsleið fyrir launafulltrúa og þau sem koma að kjara- og starfsmannamálum hjá ríki og sveitarfélögum. Það nýtist einnig stjórnendum sem koma að skipulagningu vinnutíma, vilja fá betri innsýn inn í framkvæmd launavinnslu eða auka hæfni sína á sviði starfsmannamála.

Námsleiðin er unnin í samstarfi fjármála- og efnahagsráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga í gegnum samstarfsvettvang Starfsmenntar.

Eftirfarandi þemu eru tekin fyrir:

  • Þema I - Opinber vinnumarkaður, ráðning, starfslok og starfsskyldur
  • Þema II - Vinnutími og afgreiðsla launa
  • Þema III - Fjarvera frá vinnu - launaðar og ólaunaðar fjarvistir
  • Þema IV - Mannauður og starfsþróun
  • Þema V - Meðferð persónuupplýsinga og skjalastjórnun
  • Þema VI - Hlutverk og hæfni launafulltrúans

Þátttakendum stendur til boða áhugasviðsgreining og/eða viðtal við náms- og starfsráðgjafa.

Námskeiðin eru hluti af námsleiðinni Launaskólinn en engin krafa er gerð um að þátttakendur ljúki öllum námskeiðum námsleiðarinnar.

Fjallað er um alla helstu lykilþætti sem þarf að hafa í huga í tölvupóstsamskiptum. Einnig er fléttað inn í námskeiðið samskiptum í gegnum netspjall. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu.
Hefst:
08. maí 2024
Kennari:
Margrét Reynisdóttir
Verð:
18.500 kr.
Tegund:
Vefnám

Í þremur örþjálfunarmyndböndum er sýnt hvernig líkamstjáning og raddbeiting hafa áhrif á samskipti með það að markmiði að gera þau árangursríkari. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélöga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
Hefst:
08. maí 2024
Kennari:
Margrét Reynisdóttir
Verð:
22.100 kr.
Tegund:
Vefnám

Framhaldsnámskeið fyrir þau sem vilja bæta við færni sína og kunnáttu á Excel. Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
Hefst:
28. maí 2024
Kennari:
Bjartmar Þór Hulduson
Verð:
39.500 kr.
Tegund:
Vefnám