Námslýsing
Fjallað er um hvernig á að veita afbragðsþjónustu í gegnum síma. Kennd eru ýmis gagnleg ráð til að hafa samtöl faglegri og um leið hnitmiðaðra. Farið er yfir tækni sem má nota í samskiptum við erfiða einstaklinga í síma. Námskeiðið er byggt upp með leiknum vídeóum, krossaspurningum og verkefnum.
Þátttakendur fá rafbókina 20 góð ráð í þjónustusímsvörun og gátlista yfir lykilþætti í þjónustusímsvörun. Nánari upplýsingar um bókina má sjá á www.gerumbetur.is. Þátttakendur fá einnig 4 vikum eftir námskeiðslok sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í þjónustusímsvörun.
Námskeiðið er opið í 4 vikur.
Markmið
- Stýra og stytta samtöl.
- Þekkja algeng mistök í þjónustusímsvörun.
- Læra ýmis ráð í samskiptum við erfiða einstaklinga.
- Efla öryggi í samskiptum og fagmennsku.
Dagskrá
Dagsetning | Námsþáttur | Tími frá | Tími til | Kennari |
---|---|---|---|---|
13.11.2019 | 20 góð ráð í þjónustusímsvörun | 00:00 | 00:00 | Margrét Reynisdóttir |
Fyrirkomulag
Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum og verkefnum.Tengiliður námskeiðs

Björg Valsdóttir
Staður og stund
13. nóvember 2019, námskeiðið er opið í fjórar vikur.
Umsjón
Margrét Reynisdóttir
Samstarfsaðilar
Gerum betur
Gott að vita
Stafrænt nám er hægt að stunda hvar og hvenær sem er.
Mat
Skila verkefnum 4 vikum eftir að námskeið hefst.
Ummæli
Takk fyrir fróðlegt og skemmtilegt námskeið.
– Auður Ýr
Þetta er námskeið sem ég hvet aðra til að taka.
– Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, ráðgjafi hjá Íbúðalánasjóði
Takk fyrir, vel gert og hagnýtt námskeið sem ég á eftir að nýta mér í starfi.
– Aldís Eyjólfsdóttir, starfsmannastjóri NLFÍ