Aftur í námskeið

Sáttamiðlun

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Sáttamiðlun er vaxandi aðferðafræði við lausn ágreiningsmála út um allan heim. Sáttamiðlun er m.a. notuð við lausn ágreinings sem upp kemur í daglegu lífi, hvort sem er í viðskiptum, innan fyrirtækja eða fjölskyldna. Í sáttamiðlun er leitast við að aðilar máls komi með beinum hætti að lausn ágreiningsmála í stað þess að þriðji aðili ákveði niðurstöðuna.

Farið verður yfir ferli sáttamiðlunar og þær kröfur sem gerðar eru til sáttamiðlara í störfum sínum. Þá verður litið til þeirra aðferða sem hægt er að beita til að bæta samskipti á milli deiluaðila sem og árangursríkar aðferðir við upplýsingaöflun.

Efnistök

​Að auka færni sína í mannlegum samskiptum
Að öðlast hæfni til að greina raunverulega ástæðu deilumála
Að geta beitt virkri hlustun við úrlausn ágreiningsefna
Að geta beitt spurningatækni til að öðlast skilning á eðli ágreinings
Að öðlast aukið sjálfstraust til þess að takast á við erfið deilumál innan fyrirtækja og þekkja leiðir til að leysa úr þeim til lengri tíma litið.

Hæfniviðmið

Fyrirkomulag

Námskeiðið er vefnám á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleyft að fara yfir efnið á þeim stað og tíma sem hentar.

Eftir skráningu hjá Starfsmennt þarf að bíða eftir næsta virka degi, þá kemur póstur frá Opna Háskólanum í HR sem veitir aðgang að námssvæði námskeiðisins (kennslukerfi Opna háskólans).

Gott að vita
Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Opna Háskólanum í HR
Samstarfsaðili
Opni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
1,5 klst
Mat
Áhorf
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námskeiðið er fyrir öll sem vilja auka færni sína í mannlegum samskiptum, læra að greina eðli ágreiningsmála og beita skapandi hugsun við úrlausn þeirra.