Aftur í námskeið

20 góð ráð í þjónustusímsvörun - stafrænt námskeið

Lýsing

Fjallað er um hvernig á að veita afbragðsþjónustu í gegnum síma. Kennd eru ýmis gagnleg ráð til að hafa samtöl faglegri og um leið hnitmiðaðri. Farið er yfir tækni sem má nota í samskiptum við erfiða einstaklinga í síma.

Þátttakendur fá rafbókina 20 góð ráð í þjónustusímsvörun og gátlista yfir lykilþætti í þjónustusímsvörun. Nánari upplýsingar um bókina má sjá á www.gerumbetur.is.

Hæfniviðmið

Að geta stýrt samtölum og stytt þau.
Að þekkja algeng mistök í þjónustusímsvörun.
Að læra ýmis ráð í samskiptum við erfiða einstaklinga.
Að efla öryggi í samskiptum og fagmennsku.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum og verkefnum. 

Námskeiðið er opið í fjórar vikur og fjórum vikum eftir námskeiðslok fá þátttakendur sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í þjónustusímsvörun.

Umsjón
Margrét Reynisdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Björg Valsdóttir
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
10 klst
Mat
Skila verkefnum 4 vikum eftir að námskeið hefst.
Verð
24.500 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Námskeiðið er opið öllum.