Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á námskeiðinu lærir þú að bæta skipulag og samskipti, einfalda tímastjórnun og verkefnastýringu ásamt því hvernig þú getur haldið betur utan um tengiliði og viðskiptavini. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.
Þú lærir að halda dagbók, bóka fundi, sinna tímastjórnun og almenna skjalastjórnun. Þú lærir að geyma og flokka upplýsingar um tengiliði og viðskiptavini og halda utan um samskipti. Þú færð verkfæri til þess að auðvelda eftirlit með eigin verkefnum sem og þeim sem eru úthlutuð öðrum. Þú lærir að skrifa minnismiða, geyma þá og flokka, setja upp ferilskrá og skipulag ásamt því að senda, taka á móti og vinna með tölvupóst.
Kennarinn veitir þér aðgang að rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar þú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða