Aftur í námskeið

Ás styrktarfélag | Þjónandi leiðsögn

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Hvernig getum við byggt upp traust, öryggi og jákvæð tengsl í daglegu starfi?

Í starfi á heimilum og sambýlum fyrir fatlaða skipta samskipti og tengsl miklu máli.

Þjónandi leiðsögn (e. Gentle Teaching) er hugmynda- og aðferðafræði sem leggur áherslu á vináttu, virðingu og öryggi í samskiptum milli starfsfólks og notenda.

Á námskeiðinu er farið yfir hvernig þessi hugmyndafræði getur stutt starfsfólk í daglegu starfi. Fjallað er um hvernig hægt er að byggja upp traust, draga úr kvíða og styðja einstaklinga til að upplifa öryggi og tilheyra. Einnig er skoðað hvernig þessi nálgun tengist mannréttindum og þeim gildum sem liggja til grundvallarþjónustu við fatlað fólk. Áhersla er lögð á raunhæf dæmi úr starfi og hvernig hægt er að nýta þessa hugsun í daglegum samskiptum og stuðningi.

Efnistök
  • Grunnstoðir Gentle Teaching
  • Mikilvægi tengsla, vináttu og virðingar í samskiptum
  • Hvernig skapa má öryggi og traust í daglegu starfi
  • Hvatning og stuðningur við einstaklinga í daglegu lífi
  • Gentle Teaching í samhengi við mannréttindi og þjónustu við fatlað fólk
  • Dæmi úr starfi og umræður
Hæfniviðmið
Að öðlast betri skilning á hugmyndafræði Gentle Teaching og hvernig hún getur styrkt samskipti, öryggi og vellíðan í daglegu starfi
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verkefni
Umsjón
Arne Friðrik Karlsson sérfræðingur
Námsform
Staðnám
Tími
  • 14. apríl 2026 klukkan 13:00-16:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Ás styrktarfélag Ás styrktarfélag, Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur
Verð
Markhópur
Aðeins ætlað starfsfólki hjá Ás styrktarfélagi. Hentar bæði nýju starfsfólki og þeim sem vilja dýpka skilning sinn á mannlegri og virðingarfyllri nálgun í starfi

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
14.04.2026Þjónandi leiðsögn13:00Arne Friðrik Karlsson