Aftur í námskeið

Árangursrík samskipti í þjónustu

Lýsing

Í þremur örþjálfunarmyndböndum sýnir Örn Árnason leikari á skemmtilegan hátt hvernig líkamstjáning og raddbeitingin hafa áhrif á hvort samskipti þín séu árangursrík.

Myndböndin þrjú eru eftirfarandi:
Góð samskipti byrja hjá okkur sjálfum.
Breytir raddbeiting merkingu orða?
Hlusta með augunum.

Námskeiðið nýtist jafnt í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsfólk hvort sem það er á netinu eða augliti til auglitis. Námskeiðinu fylgja verkefni með það að markmiði að bæta eigin samskiptatækni.

Hæfniviðmið

Að skilja mikilvægi líkamstjáningar og raddbeitingar í árangursríkum samskiptum
Að átta sig á mikilvægi samskiptatækni í virkri hlustun
Að vita að jafnvel lítil atriði í samskiptatækni þinni geta haft mikil áhrif á upplifun annarra
Að styrkja öryggi í samskiptum og fagmennsku

Fyrirkomulag

Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum og verkefnum. 

Námskeiðið er opið í fjórar vikur.

Umsjón
Margrét Reynisdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Björg Valsdóttir
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
12 klst
Mat
Skila þarf verkefnum fjórum vikum eftir að námskeið hefst.
Verð
29.500 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Öll sem vilja auka árangur í samskiptum.